Sjálfstæðisflokkurinn krataflokkur! HÆGRI GRÆNIR svarið ?
4.10.2010 | 00:09
Bara síðast á Útvarpi Sögu í gærmorgunn lýsti þingmaður
Sjálfstæðisflokksins sig reiðbúinn að mynda ríkisstjórn með
Samfylkingunni, og láta ESB-aðlögunarferlið hafa sinn gang,
svo hjól atvinnulífsins færu að rúlla eins og hann orðaði það.
Endurvekja sem sagt Hrunstjórnina aftur og hoppa aftur upp
í hjá sósíaldemókrötunum. Ótrúlegt en skiljanlegt, því hvorugur
hrunflokkurinn vill kosningar. Ekki frekar en Fjórflokkurinn allur.
Því á svipuðum nótum talar formaður Framsóknar, og allir vita
að Steingrímur J getur ekki hugsað sér kosningar.
En þarna sýnir Sjálfstæðisflokkurinn enn og aftur sitt sósíal-
demókratiska eðli. Enda oftar en ekki unnið til vinstri, og þá
með sósíaldemókrötum. Enda eiga þessir tveir flokkar mesta
ábyrgð á hruninu, sbr. EES-samningurinn, grunnrót hrunsins,
þótt Framsókn hafi svo hjálpað til síðar með hina misheppnuðu
einkavæðingu bankanna.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert annað en tækifærasinnaður
krataflokkur. Sem ALLTAF er reiðubúinn AÐ VINNA TIL VINSTRI!
Og fórna öllu til sbr. ESB-aðlögunarferli. - Sem forystuafli fyrir
borgaralegum gildum og viðhorfum á þjóðlegum grunni hefur
hann GJÖRSAMLEGA brugðist. Enda aldrei stofnaður í þeim
tilgangi. Því annars hefði aldri orðið hér algjört efnahagslegt
hrun, upplausn og stjórnleysi, nú undir afturhaldsstjórn
vinstriaflanna. Allt í boði Sjálfstæðisflokksins. Og meir að segja
í borgarstjórn líka!
Allir sannir þjóðhollir hægrimenn hljóta því að horfa til þess
að á hægri kannti íslenzkra stjórnmála VERÐUR að fara fram
algjör uppstokkun og uppgjör. Eins og raunar allstaðar í hinum
íslenzku stjórnmálum í dag. HREINSUN! Vísir að slíku uppgjöri
og endurnýjun er nýr flokkur til hægri. Flokkur með STERKA og
ólaskaða ímynd! HÆGRI GRÆNIR. Sem a.m.k allir framfarasinn-
aðir þjóðlegir íhaldsmenn hljóta nú að horfa til og skoða.
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook...........
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Guðmundur.
Það er komið á daginn sem ég hefi tuðað yfir til langtíma að enginn munur er á Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni í raun þegar til kastanna kemur, því miður, báðir flokkar hafa gengið eftir taumlausum markaðsöflum sem viðkomandi flokkar höfðu ekki möguleika að setja á beisli, því beisli var ekki til.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 4.10.2010 kl. 01:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.