Höfundur
Höfundur starfar sem sjálfstæður bókhaldari. REIKNINGSSKIL SF. Í stjórnmálum aðhyllist þjóðleg, borgarasinnuð viðhorf. Er í FRELSISFLOKKNUM. Kristinn.
Netfang gjk@simnet.is
Eldri færslur
- Maí 2018
- Nóvember 2017
- Október 2017
- Ágúst 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Júní 2016
- Maí 2016
- Mars 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- Ágúst 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Des. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
En hvað með íhlutun ESB Ögmundur og Álfheiður ?
9.11.2010 | 00:17
Gott og vel. Hafið áhyggjur af einhverri eftirlitssveit á vegum
USA kringum bandariska sendiráðið á Íslandi Ögmundur og
Álfheiður. Sem að hluta er skipuð Íslendingum skv. fréttum. Já
til að gæta grasflatarins utan bandaríska sendiráðsins. Já bara
gott og vel! En hvað þá með hitt stórveldið? Það Evrópska? ESB?
Sem hyggst ekki bara opna sendiráð innan skamms á Íslandi
með tilheyrandi grasfleti og öllu. Heldur með áformum um eina
grófustu íhlutun í íslenzk innanríkismál frá lýðveldisstofnun. Með
tilheyrandi njósnastarfsemi og fjáraustri svo milljarða skipta til
innlimunar Íslands í hið evrópska stórveldi ESB! Og það gegn
vilja stórs meirihluta þjóðarinnar.
Ættuð að skammast ykkar fyrir svona yfirgengilega HRÆSNI
Ögmundur Jónasson og Álfheiður Ingadóttir. En kunnið það aug-
sjáanlega ekki komandi úr herbúðum Vinstri grænna bjóðandi
hið evrópska stórríki ESB velkomið til njósna og takmarkalausra
mútugreiðslna svo innlimun Íslands í sæluríkið ESB getið gengið
fram sem fyrst. Enda kunnið aðferðafræðina, forverar hérlendra
kommúnista.
ÁFRAM ÍSLAND!
Almenningur sé upplýstur um njósnasveitina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:25 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.12.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 596451
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- fullveldi
- thjodarheidur
- jonvalurjensson
- gustafskulason
- duddi9
- alit
- altice
- andres
- annabjorghjartardottir
- asthildurcesil
- astromix
- axelaxelsson
- axelthor
- bene
- benediktae
- brandarar
- diva73
- doddidoddi
- dramb
- dullur
- ea
- eeelle
- eggertg
- einherji
- emilkr
- esb
- esv
- fannarh
- flinston
- friggi
- gagnrynandi
- gattin
- geiragustsson
- pallvil
- gmaria
- gmc
- godinn
- gp
- gudjul
- gun
- gunnlauguri
- hallarut
- halldorjonsson
- hannesgi
- hlekkur
- hhraundal
- hogni
- hreinn23
- hrolfur
- hugsun
- huldumenn
- hvala
- islandsfengur
- isleifur
- jaj
- jensgud
- johanneliasson
- jonsullenberger
- juliusbearsson
- jullibrjans
- kaffistofuumraedan
- kolbrunerin
- kristjan9
- ksh
- maeglika
- maggiraggi
- magnusjonasson
- magnusthor
- mal214
- mixa
- morgunbladid
- muggi69
- nautabaninn
- nielsen
- noldrarinn
- nytthugarfar
- oddikriss
- olafurthorsteins
- partners
- prakkarinn
- predikarinn
- rafng
- rs1600
- rynir
- samstada-thjodar
- siggisig
- siggith
- sighar
- sigurjonth
- silfrid
- sjonsson
- skessa
- tilveran-i-esb
- skinogskurir
- skodunmin
- skulablogg
- solir
- stebbifr
- sumri
- sushanta
- svarthamar
- thorhallurheimisson
- sveinnhj
- tomasha
- valdisig
- tibsen
- thorsteinnhelgi
- toro
- trumal
- valdimarjohannesson
- vefritid
- veravakandi
- vestfirdir
- vidhorf
- westurfari
- ziggi
- ornagir
- seinars
- zeriaph
- thjodarskutan
- lifsrettur
- auto
- solbjorg
Athugasemdir
Þú ert náttúrlega með nákvæmlega rétta vinkilinn á þetta, Guðmundur Jónas. Hvernig voga þau Ö-karlarnir og Álfheiður sér að nefna þetta lítilræðis-eftirlit við sendiráðið meðan þau eru samsek í því að stefna lýðveldinu í innlimun í evrópskt stórveldi sem hagar sér hér eins og fíll í postulínsbúð, brjótandi niður stjórnskipan landsins og fór til þess bakdyraleiðina, án þess að þjóðin yrði upplýst um það fyrir kosningarnar 2009 og jafnvel ekki einu sinni um sumarið þegar þessir ömurleikans fulltrúar (Á til Ö-liðið, Árni Þór og Ásta Ragnheiður meðtalin) samþykktu þessa ömurlegu umsókn (Ö-umsóknina).
Þú gleymdir reyndar að nefna að Eessbéið valdfreka er (enn í sínum afhjúpandi makríls-ránshug) að fara að opna tvær kynningarmiðstöðvar hér á landi til að dreifa sem víðast sínum rammhlutdræga gyllingaráróðri, enda æst í að innlima þetta þjóðríki sem veitir þeim aðgang að norðurslóðum, Norðurskautsráðinu og beztu fiskimiðum Atlantshafs.
Eigum við ekki bara að tilkynna þessum yfirgangsmönnum úr Brussel, að þeir verði að loka þessum miðstöðvum, áður en þeir opna þær?
Jón Valur Jensson, 9.11.2010 kl. 04:24
Algerlega sammála ykkur. Evrópuveldið fær að vera með grófa íhlutun í friði endalaust og það verður að fara að stoppa það. Og nú setur Álfheiður sig á háan hest með sjálfsvörn Bandaríkjamanna.
Elle_, 9.11.2010 kl. 12:59
Málatilbúnaður!!!,Hvaða óskunda geta sendiráð gert Íslendingum. Hvers vegna umkringdi lögreglan Jóhönnu og ríkisstjórn þegar saklaus og réttmæt mótmæli fóru fram. Ríkisstjórninni ber að verja sendiráð annara ríkja hér,en ekki kynningarmiðstöðvar ESB. þar ætla ég að mótmæla þótt ein verði.
Helga Kristjánsdóttir, 9.11.2010 kl. 15:00
Ég verð með þér, Helga. Tími núna til að mála spjöld.
Jón Valur Jensson, 9.11.2010 kl. 17:08
Bara að benda ykkur á að við óskuðum eftir viðræðum við ESB! Þetta var allt í pakkanum. Og ekkert sem mælir á móti því að þeir opni hér sendiskrifstofu sem þeir hafa reyndar held ég haft að einhverjuleiti sem hluti af fastanefnd ESB gangvart Noregi og Íslandi. Nú hafa hún eðli máls samkvæmt verið klofin í 2 nefndir þar sem að Noregur er ekki í aðildarviðræðum.
Bendi líka á að mjög margarar ESB þjóðir eru hér með sendiráð á að reka þau í burtu líka? Þau gætu gefið ESB upplýsingar um okkur. Alveg rosalega hættulegt. Eða skipt sér að inniríkismálum. Ofsalega líklegt? Bara að senda öll þessi sendiráð í burt. Þau hafa öll skipt sér að málum hér. Mótmælt gestum sem við höfum boðið, skipt sér að deilum okkar við önnur ríki og svo framvegis.
En semsagt að fastanefnd ESB hefur haft hér aðstöðu um einhvern tíma og ósköp eðlilegt þegar við erum að sækjast eftir því að tengjast þessum ríkjum í ESB svo nánum böndum á ýmsum sviðum.
Og viti menn ESB er með sendinefndir í 130 löndum utan ESB . sbr.
Bendi hinsvegar að ólíkt USA er ESB ekki heimsveldi eða hernaðarbandlag. ESB er fyrst og fremst samvinna ríkja á sviði umhverfismála, viðskipta og fjármagns og tolla. Auk þess sem að þessi ríki sameinast um ákveðin mál er varða utanríkismál þó hver þjóð hafi sína stefnu í þeim líka.
Magnús Helgi Björgvinsson, 9.11.2010 kl. 17:57
Nei, Magnús Helgi Björgvinsson, VIÐ óskuðum ekki eftir þessu, heldur Ö-liðið', einkum þó Össurargengið sem þú ert í tygjum við.
Ég verð að bíða með að lesa allt innleggið hjá þér, er tímabundinn sem stendur.
Nú var sendiherra ESB hér á landi að ljúga því með sínum hálfsannleik að hér verði litlu fé varið til kynningarmála, "hvergi í Evrópusambandinu der varið minna fé til slíkra mála" (og lýgur því um leið, að þetta verði ekki áróður, heldur hlutlaus kynning). Hann gat þess ekki, að hinar þjóðirnar eru um 1570 sinnum stærri en við og að HLUTFALLLSLEGA verði mjög miklu varið hér til hinna rangnefndu kynningarmála.
Jón Valur Jensson, 9.11.2010 kl. 18:25
Verð áfram upptekinn og hvet fullveldissinna til að svara áróðri Magnúsar hér.
Ekki er hún betri músin sem læðist en hin sem stökkur. Undir smeðjulegum slagorðum um "samvinnu" og "samstarf" og menningu hyggjast Brusselmenn berjast fyrir yfirráðum yfir landi okkar. ÁTTARÐU ÞIG EKKI Á ÞVÍ, Magnús Helgi Björgvinsson?
Ef Bandaríkjunum byðist fríverslunar- OG "samstarfs"- og sameiningar-samningur við Ísland, þar sem Íslendingar fengju nál. 1/1000 hlutdeild í fullveldi Bandaríkjanna gegn því að gefa stórríkinu æðstu lögsögu yfir okkar málum og að þegar okkar lög rækjust á lög stórríkisins myndu lög þess ráða, myndir þú þá ekki berjast gegn því sem svínslegu ranglæti, jafnvel þótt þar væru við völd ágætustu menn sem hefðu engan áhuga á því að eltast við heimsveldishagsmuni?
Líttu framan í þig í spegli á sérhverjum morgni og spyrðu þig: Væri Jón Sigurðsson ánægður með það sem ég hef leyft mér að skrifa?
Jón Valur Jensson, 10.11.2010 kl. 03:17
Takk kærlega Jón Valur fyrir málsvörn okkar hér! Var vantviðlátinn og komst
ekki í umræðuna. Tek heilshugar undir hvert orð þitt hér!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.11.2010 kl. 21:57
Kærar þakkir, Guðmundur Jónas.
Eftirfarandi segir Magnús Helgi um evrópsk sendiráð hér:
"Þau hafa öll skipt sér að [sic] málum hér. Mótmælt gestum sem við höfum boðið, skipt sér að [sic] deilum okkar við önnur ríki og svo framvegis."
Já, hafa þau það? Fróðlegt, og segðu betur frá, Magnús.
Einnig segirðu: "Bendi líka á að mjög margarar ESB þjóðir eru hér með sendiráð á að reka þau í burtu líka? Þau gætu gefið ESB upplýsingar um okkur. Alveg rosalega hættulegt. Eða skipt sér að inniríkismálum [sic]. Ofsalega líklegt? Bara að senda öll þessi sendiráð í burt," segirðu eða öllu heldur spyrð. Það er ekki mitt að segja öðrum til um slíkt, en ég bendi á, að það er langt bil milli þess að gagnrýna ummæli sendiherra, kalla þá inn á teppið og að láta leggja sendiráð niður! En sízt er ég verjandi þeirra erlendu sendiráðsstarfsmanna, sem voga sér að tala gegn hagsmunum okkar og rétti. Í vissum, grófum tilfellum getur verið rétt að vísa slíkum tilteknum diplómötum úr landi fyrir óviðurkvæmileg afskipti af innanríkismálum.
Magnús segir einnig (sic): "Bendi hinsvegar að ólíkt USA er ESB ekki heimsveldi eða hernaðarbandlag." – En Bandaríkin eru ekki hernaðarbandalag. Þau eru herveldi. En það er greinileg tilhneiging innan ESB, að einnig það verði herveldi; ein ástæðan er t.d. sú, að þannig verði hægt að hagræða í stað þess að halda uppi mörgum sjálfstæðum herjum þjóðríkja.
Hvað segir annars Barroso, æðsti maður ESB frá nóv. 2004, um heimsveldi? Sjá hér: Barroso “forseti” talar um “heimsveldi” sitt (empire). Og um viðhorf fyrirrennara hans í starfi, þ.e. Jacques Delors, sem var forseti framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins 1985–1995 og Jón Baldvin Hannibalsson hefur bugtað og beygt sig fyrir sem hinum mesta stjórnvitringi, má lesa hér: "Wir müßen Großmacht werden!" – stórveldisdraumur Evrópubandalagsins.
Jón Valur Jensson, 11.11.2010 kl. 06:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.