DV sleppir fullveldisákvæðinu vísvitandi ! Selur DV sig ?


   Enn einu sinni kemur DV upp um sig sem málsvari ESB
á Íslandi. Og  hugsar  ábyggilega gott til glóðarinnar til
þeirrar milljarða sem ESB hyggst ausa í áróður sinn og
auglýsinga til aðlögunar Íslands að ESB. En DV býður nú
lesendum sínum upp á próftöku á heimasíðu sinni til að
auðvelda þeim að finna ,,réttu" frambjóðendurna. Ótal
spurningar eru í boði. Nema ein er snertir alveg SÉRSTAK-
LEGA það sem þjóðfundurinn  lagði þó AÐAL    áherslu á.
Að FULLVELDI ÍSLANDS og SJÁLFSTÆÐI ÍSLANDS VERÐI
TRYGGT. Enga spurningu er að finna  um  það  í  prófi DV! 
Þótt allir  vita  að  um  það  verður  mest  tekist á af þeim
atriðum sem stjórnlagaþingið mun fjalla um.  Því ef ESB-
sinnum ekki tekst að breyta fullveldisákvæðum stjórnar-
skrárinnar eins og það er í dag getur Ísland  ekki gerst
aðili að ESB. Því er AFAR mikilvægt að kjósendur séu vel
upplýstir um afstöðu frambjóðenda til breytinga  á full-
veldisákvæðum stjórnarskrárinnar. Þjóðfundurinn Í RAUN
mælist til þess! En þarna ætla ESB-sinnar eins og DV  að
skauta framhjá þessari grundvallar spurningu í von um að
geta smyglað sem flestum ESB-sinnum inn á stjórnlagaþing-
ið. 

  Þessi vinnubrögð DV í Evrópumálum koma samt ekkert á
óvart.  Hefur verið málpípa ESB undanfarið eins og því sé
hreinlega BORGAÐ fyrir það. Enda utanríkisráðherra  þegar
orðinn  vikulegur  píslahöfundur  DV  til boðunar  fagnaðar-
eridisins. - Aðeins forsmekkurinn  af ESB-íhlutuninni í ís-
lenzk innanríkismál sem ESB hefur boðað með stuðningi
andþjóðlegra fjölmiðla eins og DV.  Sem virðist hafa selt
sig  ESB á hönd!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKERT ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband