Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að svíkja í Icesave?


   Það væri þá eftir öðru, ef Sjálfstæðisflokkurinn færi að
svíkja í  Icesave  núna.  Flokkurinn sem bar ábyrgð á
Icesave-klúðrinu í upphafi. En fréttir herma að vissir
hópar meðal atvinnurekanda innan flokksins þrýsti nú
mjög á þingflokkinn að samþykkja þau samningsdrög,
sem Icesavestjórnin hefur enn á ný gert við  Breta og
Hollendinga. Þrátt fyrir að þjóðin hafi sagt ÞVERT NEI
við Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars s.l.

  Ljóst er að þjóðsvikararnir í Icesavestjórninni munu
ekki koma öðrum icesave-þjóðsvikum gegnum Alþingi
nema með hjálp Sjálfstæðisflokksins eða hluta hans.
Það verður ekki aldeilis til að bæta ímynd Sjálfstæðis-
flokksins leggist hann svo lágt núna að koma  hinni
andþjóðlegu vinstristjórn til hjálpar, í því að troða upp
á þjóðina ólögvörðum skuldadrápsklyfjum  erlendra
nýlenduvelda Evrópusambandsins. Þannig að eymd
og fáttækt verði hlutskipti Íslendinga a.m.k út þessa
öld. Allt vegna aula-og undirlægjuháttar  hérlendra
stjórnvalda gegn erlendri kúgun í boði ESB!

   Hvet allt þjóðhollt fólk til hægri að fylgjast vel með
Sjálfstæðisflokknum í þessu máli. En HÆGRI GRÆNIR
hafna ALFARIÐ hverskins Icesave-svikum og standa
fast á íslenzkum málstað í þessu mikilvæga máli!

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né  SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!

  tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook..


mbl.is Samkomulag að nást um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband