Utanríkisráðuneytið botnlaus hít! Baggi á þjóðinni!


   Fram kom í máli utanríkisráðherra á Alþingi í gær að
utanríkisráðuneytið  er botnlaus  hít.  Já  meiriháttar
baggi á þjóðinni Í boði sósíaldemókrata Samfylkingar-
innar,  og  sósíaldemókratanna  í Sjálfstæðisflokki og
Framsóknar undanfarna áratugi. Ljóst er að utanríkis-
ráðuneytið hefur gegnum tíðina verið rekið eins og um
fleiri milljón manna þjóð væri að ræða. Í engu samræmi
við fámenni þjóðarinnar og hagsmuni. Þarna sem oftar
hefur hin öfgakennda alþjóðahyggja sósíaldemókrata
ráðið för, og fengið að grassera.  Og nú skal bæta enn
um betur. Því ef af ESB-aðild Íslands verður, mun  allt
umfang utanríkisráðuneytis margfaldast og sendiráðum
stórfjölga, því þá verður Ísland að hafa sendiráð í öllum
aðildarríkjum ESB.

  Utanríkisráðuneytið er eitt besta dæmi um yfirgengi-
lega óstjórn og óráðsíu í íslenzku stjórnkerfi. Merkis-
beri MEIRIHÁTTAR aulaháttar, bruðls og flottræfilsháttar 
hérlendra stjórnmálamanna og embættismannakerfis.

   Á kostnað okkar almennings á Íslandi og lífskjara
okkar.............

   tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.........
mbl.is Kostnaður nánast fjórfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Ætli við förum nú ekki að losna við þessa aumu eyðslustjórn, Guðmundur?  Þau ergja mann e-n veginn endalaust með óheilindum og óráðsíu.  Það er ekki minnsti friður.

Elle_, 7.12.2010 kl. 07:38

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held nú Guðmundur að Utanríkisráðuneyti okkar sé reyndar mjög lítið miðað við önnur lönd, lítil og stór.  Við rekum sendiráð í Held að ég hafi heyrt að þau séu 21 og hafi fækkað úr 24.

Útgjöld Utanríkisráðuneytis eru áætluð á næsta ári um 10,9 milljarðar og það er með um 3 millörðum sem við borgum til Alþjóðastofnana eins og SÞ og fleiri. Þróunaraðstoð og hjálpar upp á 1,2 milljarða. Það kostar okkur um 2,8 milljarða að reka sendiráð og sendiskrifstofur.  Ég myndi nú ekki kalla það botnlausa hít

Það kostar okkur t.d. um 19 milljarða að reka landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneyti. 121 milljarð að reka heimbrigðis og tryggingamálaráðuneyti, um 97 milljarða að reka heilbrigðisráðuneyti

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.12.2010 kl. 09:00

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það er alveg dæmalaust hversu mikill varðhundur gjörspillts
stjórnkerfis og stjórnarhátta þú ert, jafnvel standandi frammi fyrir einu
mesta efnahagshruni Íslandssögurnar sem þetta gjörspillta kerfi olli.
Enda dæmigerður sósíaldemókrati sem ÞVERNEITAR að horfast í auga
við fámenni þjóðarinnar og örsmás hagkerfis hennar. Enda hafið þið
aldrei viljað íslenzku þjóðina sjálfstæða og fullvalda, heldur hana inntroðna
og ósjálfstæða í öðru ríki eða ríkjasamböndum.

Hér væri EKKERT alvarlegt vandamál hefði öfga-alþjóðahyggja
sósíaldemókrata aldrei náð fótfestu á Íslandi, heldur að landinu hefði ætíð verið stjórnað af þeirri grunnfyrirhyggju, að eyða aldrei um efni fram og að
Ísland hefði verið stjórnað miðað við afmarka sinna varðandi íbúafjölda
og sérstakra íslenzkra aðstæðna.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.12.2010 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband