AGS handrukkari fyrir Icesave ! NEI VIÐ ICESAVE!


   Enn og aftur opinberast handrukkarahlutverk AGS  í
Icesave fyrir nýlenduveldi ESB, Breta og Hollendinga.
Framkvæmdastjóri hjá AGS segir nýgert samningsupp-
kast í Icesave KÆRKOMIÐ! Já KÆRKOMIÐ. Fyrir hverja?
Alla vega ALLS EKKI fyrir íslenzku þjóðina, sem enn á
ný á að  þröngva  til að greiða Icesave, ÞÓTT HÚN BERI
ENGA SKYLDU TIL. ENGA!  Algjöran  óútfylltan  vixil sem
gæti numið  á  annað  hundrað  milljarða. Ávísun á eymd
og fátækt langt út öldina. Vegna vítaverða þjóðarsvika
og  aumingjaskapar íslenzkra stjórnvalda við að verja
ekki íslenzka þjóðarhagsmini og málstað Íslands í  öllu
þessu Icesave-rugli. 

   Icesave-þjóðsvikastjórnin ætlar sem sagt enn og aftur
að reyna  að hneppa þjóðina í skuldafjötra sem útrásar-
mafíuósar sköpuðu. Skuldadrápsklyfjar sem tvö nýlendu-
veldi ESB reyna að kúga íslenzku þjóðina til að bera, og
sem VEIKGEÐJA ESB-sinnaðir þjóðsvikarar í ríkisstjórn Ís-
lands og  á  Alþingi  reyna  að  troða  í  gegn,  til  að  fá
gott veður inn í hið fallandi Evrópusamband þeirra í upp-
lausn.

  En hvernig ætlar stjórnarandstaðan að bregðast við?
Hvað  segir  stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn? Mun
Sjálfstæðisflokkurinn  samþykkja  Icesave-þjóðsvikin?
Eða sitja  hjá, sem yrði  toppurinn  af  aulahætti þess
flokks frá hruni. Örlög Sjálfstæðisflokksins munu ráðast
í afstöðu hans til þess þjóðsvikasamnings í Icesave sem
nú liggur fyrir.  Svo mikið er víst! Þögn hans nú  lofar
hins vegar alls ekki góðu!

  Þjóðin hefur HAFNAÐ Icesave! Ef sú höfnun á að
vanvirða af ríkisstjórn og Alþingi, mun þjóðin RÍSA
UPP ásamt forseta sínum! Svo einfalt er það!

   ÞVERT NEI VIÐ ICESAVE! TIL FJANDANS MEÐ AGS!

   ÁFRAM ÍSLAND!  

    
mbl.is Ísland hefur náð töluverðum árangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Guðmundur ég er ekki oft hér,en í raun erum við samherjar. Samherjar gegn Icesaveþjóðsvikastjórninni. Er ekki kominn timi til að sameina kraftana. Hvernig? Mæta á fundum,þar sem enginn metnaður er um hvor er betri eða meiri,eins og tíðkast hefur í íslenskri pólitík.Leggja línur í baráttunni. Það kemst ekki hnífurinn á milli skötuhjúanna sem vilja framselja fullveldi okkar. Takmark þeirra eru völdin,sama væri mér ef þau strýddu ekki svo voveiflega gegn íslensku þjóðinni. Okkar takmark er að bjarga íslensku þjóðinni frá þessum hryllingi. Getum við treyst á stjórnarandstöðuna? Ef nei, þá látum til skarar skríða. Baráttan hér er góð,en við sjáum að hún ein og sér dugar ekki,því óstjórnin ræður ríkjum í öllum fjölmiðlum. Gerðum við eitthvað afgerandi,fengjum við áheyrn í okkar fjölmiðli og kæmum réttum skilaboðum til þjóðarinnar,sem er að mestum hluta andvíg,Ivesave og Esb, líklega Ags-lánunum líka,ef gætum byrjað að greiða til baka. Með kveðju.

Helga Kristjánsdóttir, 12.1.2011 kl. 03:01

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk Helga. Þurfum sem fyrst nýjar kosningar og uppstokkun í íslenzku
stjórnmálin. Hef valið mér vettvang hjá HÆGRI GRÆNUM er berjast af
hörku gegn Iscesave, ESB-umsókn og AGS. Þurfum nýtt sterkt þjóðlegt
hægriafl til að leiða þjóðina út úr ógöngunum á ÍSLENZKUM FORSENDUM!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.1.2011 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband