Icesave-hræðsluáróðurinn skaut sjálfan sig !


   Andstæðingar Icesave-þjóðsvikanna eru nú í stórsókn
skv. skoðanakönnunum. Hinn öfgafulli hræðsluáróður og
hótanir Icesave-sinna er farinn að hafa þveröfug áhrif.
Fylgið hrynur af þeim, enda málstaður þeirra skelfilegur,
og þjónkun þeirra við erlenda nýlendukúgara og fjárglæf-
ramenn ömurlegur!!!!

  Næstu tveir sólarhringarnir munu ráða úrslitum. En að
þeim lokum mun hin íslenzka þjóð standa uppi knarrreist
með pálmann í höndunum. Horfandi mót bjartri íslenzkri
framtíð, sem sterk fullvalda og frjáls þjóð. Án neinna 
ólöglegra skuldadrápsklyfja fjárglæframafíuósa.

   Nýtt Ísland, nýir tímar og allsherjar uppstokkun er fram-
undan.  Valdatími framfarasinnaðra þjóðhyggjuafla!


mbl.is 57% ætla að segja nei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vonandi hefur þú rétt fyrir þér. Ég sendi allavega Vilhjálmi  Egilssyni kærar þakkir við aðstoðina.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2011 kl. 00:33

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Verð að vera það Ásthildur! Meir að segja hin landskunna spákona Sirry spáði okkur sigri í gær. Og sagði jafnframt að okkar þjóðholli málstaður yrði að sigra! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.4.2011 kl. 00:59

3 Smámynd: Elle_

Andstæðingar kúgunarsamningsins hafa öll rökin og við höfum lögin með okkur.  Hvað hafa hinir?  Lygar og rakalausan þvætting.  Og nokkra sakleysingja sem falla fyrir lygunum.  Samt finn ég fyrir miklum kvíða þar sem ICESAVE-STJÓRNIN er með alltof mikið af peningalegum stuðningsmönnum.  Og RUV.  

Elle_, 7.4.2011 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband