Verða HÆGRI GRÆNIR aðal valkostur fyrir ESB-andstæðinga?
19.4.2011 | 00:29
Mjög athyglisverð þróun á sér nú stað innan ESB. Þeir
stjórnmálaflokkar sem hvað harðastir eru gegn hinu yfir-
þjóðlega valdi í Brussel eru hvarvetna í stórsókn innan
þessa hnignandi sambands. Nýjasta dæmið eru finnsku
þingkosningarnar, þar sem aðal ESB-andstöðuflokkurinn
nær sexfaldaði fylgi sitt. Heilbrigð ÞJÓÐHYGGJA virðist því
vera í mikilli sókn í Evrópu gegn hinni gjaldþrota alþjóða-
hyggju sem hið stórlaskaða miðstýrðra ESB byggir aðallega
á.
Í ljósi þess hversu illa stjórnmálaflokkar á Íslandi eru nú
klofnir í afstöðu sinni gagnvart ESB utan Samfylkingarinnar,
hlýtur fyrr en seinna að stóreflast flokkur þar sem allir sannir
ESB andstæðingar geta 100% treyst, stutt og kosið. Því
á sú spurning fyllilega rétt á sér hvort HÆGRI GRÆNIR,
FLOKKUR FÓLKSINS, gæti orðið slíkur flokkur? Þetta er
framfarasinnaður þjóðhyggjuflokkur, sem ALFARIÐ hafnar
aðild Íslands að ESB, AF PÓLITÍSKUM ÁSTÆÐUM, með á annað
þúsund félagsmenn. Og í skoðanakönnun Útvarps Sögu um
helgina, þar sem hátt í þrjúþúsund manns tóku þátt, urðu
HÆGRI GRÆNIR í næst efsta sæti með 21.7% atkvæða.
Tilvís. HÆGRI GRÆNIR á facebook.
Umskipti í finnskum stjórnmálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Útvarp Saga er ekki þekkt fyrir árreiðanleika. Skoðanakannanir þar sem fólk hringir inn eru marklausar. Það vita allir sem fást við rannsóknir á viðhorfum fólks. Ég spái því að Sjálfstæðisflokkurinn gleypi Hægri græna ef þeir ná einhverri fótfestu sem er reyndar ólíklegt.
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 19.4.2011 kl. 09:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.