ESB hefur grófa íhlutun í islenzk innanríkismál
12.8.2011 | 20:51
ESB er nú að hefja grófa íhlutin í íslenzk innanríkismál.
Með það að markmiði að innlíma Ísland inn í sitt gjörspillta,
deyjandi Sambandsríki Evrópu. Til þess hefur það fengið
hérlent kynningar-og markaðsfyrirtæki til að annast áróður
sinn. Fyrirtækið Athygli ætlar þannig að gerast einskonar
ESB-Pravda á Íslandi, eftir sovétskri áróðursfyrirmynd.
Í þetta ESB-trúboð á Íslandi hyggst ESB verja hvorki meir
né minna en 700.000 evrum á ári.
Hér er um að ræða VÍTAVERÐ AFSKIPTI ERLENDS STÓRRÍKIS
af innanríkismálum Íslands. Kapir innlendan aðila sem lepp
fyrir sínum pólitíska áróðri. Nákvæmlega eins og hinir sovésku
kommúnistar gerðu forðum með Þjóðviljann sáluga. Enda engin
tilviljun að þetta skuli gerast einmitt þegar kommúnistar sitja í
ríkisstjórn Íslands! Með dyggum stuðningi sósíaldemókrata
sem ólmir vilja innlima Ísland í hið nýja Miðstýringa- Sovét,
sem nú er nánast á brauðfótum og í upplausn.
Þjóðfrelsis- og þjóðhyggjumenn verða nú að bregðast við af
hörku! Slík VÍTAVERÐ AFSKIPTI ERLENDS STÓRRÍKIS af innan-
ríkismálum Íslands VERÐA ALLS EKKI LIÐIN! OG ALLRA SÍST
þegar markmiðið er hreint og klárt að binda enda á fullveldi
og sjálfstæði Íslands!
ÁFRAM ÍSLAND! ENGIN ESB-AÐILD, EKKERT EES og EKKERT SCHENGEN!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:54 | Facebook
Athugasemdir
ESB er ekki ríki heldur samband ríkja og þarafleiðandi ekki stórriki heldur,
kv.
Guðjón Eiríksson, 12.8.2011 kl. 21:18
Þeim var boðið ísland á Silfurfati- af bugtandi utnaríkisráðherra og co.
Erla Magna Alexandersdóttir, 12.8.2011 kl. 21:29
Guðjón minn. Fylgist þú ekki með ESB-fréttum, þróuninni þar og vangaveltum helstu talsmanna þess? Greinilega ekki? Enda trúlega
einn úr ESB-trúboðinu!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.8.2011 kl. 21:33
Og enn heldur pólitíska ögrunin áfram af völdum Jóhönnu og co. Hefur þetta fólk einræði í þessu svokallaða lýðræðisríki? Og Guðjón að ofan er með og færi ekki að játa að hið svokallaða ríkjasamband, rænir sambandsríkin fullveldinu, Guðmundur, og er ekkert nema stórríki í sköpun. Ja, hvílíkt friðarbandalag, lítum bara á friðinn í Grikklandi sem er pínt og kvalið ásamt Írlandi af Brussel-yfirstjórninni.
Elle_, 13.8.2011 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.