Undanhald Jóhönnu hafið. Endalokin framundan!


    Undanhald Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra og
hennar óþjóðhollu vinstristjórnar er hafið. Endalokin blasa
við! Ein mesta  póliíska  niðurlæging  hennar  í stjórnarráðs-
frumvarpinu liggur nú fyrir, ef   Icesave-niðurlægingunni er
sleppt.  Ætlaði að valtra yfir þing og þjóð með yfirgengilegri
valdníðslu og hroka, til  þjónkunar yfirþjóðlegu valdi í Brussel,
en var gerð afturreka. Með skömm og ævarandi smán!

   Í byrjun þings í október verða svo rekunum kastað. Í
kröftugum fjöldamótmælum fyrir framan Alþingi. Mótmælum
sem ekki munu linna fyrr en hin gjörspillta óþjóðholla ríkis-
stjórn Jóhönnu Sigurðardóttir hefur sagt af sér, þing rofið,
og nýjar þingkosningar ákveðnar.

   MÆLIRINN ER FULLUR!       

  ÁFRAM ÍSLAND! 
mbl.is Þarf samþykki Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólbjörg

1 október er dagurinn. 2 október er svo alþjóðlegurfriðardagur, dagur án ofbeldis og er tileinkaður Gandhi. Því er við hæfði að sá dagur dögunar og vonar, verði fyrsti dagurinn sem við erum laus við þessa ríkisstjórn sem leggst á eitt að leiða okkur í ánauð og fátækt.

Þjóðin þarf að vera sameinuð um að krefjast þess að þing verði rofið. Ekki vera með óljósar kröfur og óánægjuslagorð án markmiðs. Í fyrra lá við að Jóhanna segði að þetta hefði verið afmælisfagnaður henni til heiðurs - en farið úr böndunum.

Við verðum að vita hvað við viljum, þá verður sigurinn okkar.

Sólbjörg, 17.9.2011 kl. 17:28

2 Smámynd: Elle_

Ji, hvað ég var spennt að lesa pistilinn þegar ég sá yfirskriftina.  Gat ekki hljómað jákvæðar, Guðmundur.  Við verðum að fara að losa okkur við Jóhönnu því hún víkur aldrei.

Elle_, 18.9.2011 kl. 00:32

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Hvern einasta mánuð,viku,vikudag klukkuima,mín. sek. í rúm 2 ár hef ég beðið eftir endalokum þessarar Jóhönnustjórnar. Hún hangir á roðinu,hvað sem tautar og raular,við þurfum að aðstoða hana,vegna okkar og framtíðar afkomenda okkar.

Helga Kristjánsdóttir, 19.9.2011 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband