Átti aldrei að ræða við Nubo ! Heldur ekki að svara honum!


   Einn landeigenda á Grímstöðum á Fjöllum furðar sig á að ekki
hafi verið rætt við Huang Nubo. Þetta hugarfar landeigandans
er með ólíkindum. Að sjálfsögðu átti alls ekki að ræða við þennan
erindreka og sendisvein  kínverska kommúnistaflokksins. Og ekki
einu sinni að svara umsókninni. Nema þá til að mótmæla henni
harðlega  og krefjast kínversk stjórnvöld um afsökunarbeiðni. Því
umsóknin  var svo  gróf móðgun við íslenzka þjóð. Því ENGINN þjóð
hefði látið slíka landssölu viðgangast. ENGIN!  OG ALLRA SÍST
KÍNVERSKA KOMMÚNISTASTJÓRNIN Í PEKING! Land á  stærð við
Möltu.  Þvílíkt RUGL!

    Auðvitað styðja hinn sósíaldemókrataíski landssölulýður slíka
landssölu, eins og með fullveldið og sjálfstæðið.  En að það skuli
vera þorri Sjálfstæðisflokksins sem skuli styðja slíkt er með öllu
óskiljanlegt.  Nema þá í ljósi Icesave-svikanna  og grasserandi
sósíaldemókrataískra viðhorfa og áhrifa innan þess furðuflokks.......
mbl.is „Þessi stjórnsýsla er með ólíkindum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála því sem að ofan greinir. en svo er það eitt enn: Allt þetta kjaftæði um að fjölga erlendum ferðamönnum á íslandi er hreint bull, og í raun þjóðhættulegt. Dekrið við ferðamennskuna er álíka og var við fjármálastarfsemina og útrásarmennskuna fyrir hrun. Svo óx þetta krabbamein öllu yfir höfuð, og sprakk með skelfilegum afleiðingum. Sama máli gegnir með túrismann. Þar verður offfjárfesting og gjaldþrot eftir nokkur ár. svo verður landið ofhlaðið af túrisma. Nær væri að fækka erlendum ferðamönnum, og best af öllu að setja lög sem takmarki fjölda erlendra ferðamanna á íslandi, við alls ekki hærri tölu en c. a. 100 þúsund per ár, helst minna.

óli (IP-tala skráð) 28.11.2011 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband