ESB-fjölmiðlafár & ríkisstjórnarstuðningur við Þóru skaðar hana!
8.4.2012 | 00:46
Þetta fjölmiðlafár í kringum forsetaframboð Þóru Arnórsdóttir
fer að verða ansi barnalegt ef fram heldur sem horfir. Og mun
skaða hana! En sýnir jafnfræmt þá miklu örvætingu þess ESB-
sinnaða stuðningskjarna sem að framboðinu standa, auk ríkis-
stjórnarstuðnings sem við blasir! Þar fara fremstir auk ríkisstjórn-
arflokkanna hinir ESB-sinnuðu 365 miðlarnir, með Stöð 2 í broddi
fylkingar.
Það er eins og enginn hafi áður boðið sig fram til forseta en
þessi Þóra Arnórsdóttir.- Og ekki nóg með að fréttin af framboðinu
hafi verið fyrsta frétt Stöðvar 2 með tilheyrandi loftköstum, heldur
var meiriháttar fréttaflutningur stöðvarinnar og Bylgjunar af undir-
skriftasöfnuninni í gær. Þá hefur hið ESB- sinnaða Fréttablað ekki
látið sitt eftir liggja. -
Hjákátlegast sem dæmi var þó þegar hinn örlitli netmiðill
www.flateyri.is (er Flateyringur) var misnotaður og helgaður
undirskriftarsöfnuninni á VAGNINUM á Flateyri í gær, með
tilheyrandi myndaseríu af Þóru og fjölskyldu. Sem helgast af því
að sá netmiðill er einmitt ritstýrður af hörðum sósíaldemókrötum.
En sýnir samt hysteríuna sem er í gangi kringum þetta framboð.
Og sem svífast einskins!
Fyrir okkur sem aðhyllumst FRJÁLST og FULLVALDA Ísland er
þetta ESB-framboð Þóru einungis fagnaðarefni. Því að sjálfsögðu
munu A L L I R þjóðfrelsissinnar styðja og kjósa hinn sterka
ÞJÓÐHYGGJUMANN Hr. Ólaf Ragnar Grímsson til áframhaldandi
setu á Bessastöðum. - Alla vega meðan óveðurský ESB-aðildar
og Iceesave þjóðarssvika Þóru og félaga hanga enn yfir þjóðinni.
Góð mæling það 30 júní n.k............
ÁFRAM FORSETI VOR! ÁFRAM ÍSLAND!
Þóra komin með lágmarksfjölda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þú sem hægri grænn villt því greinilega SOSIALDEMÓKRATANN Ólaf Ragnar, stuðningsmann útrásarvíkinganna nr. 1 "You ain´t seen nothing yet" áfram sem forseta.
Skítt með ESB, það er hvort eð er þjóðin sem ræður hvort við göngum í það eða ekki, ekki forsetinn.
Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 8.4.2012 kl. 01:32
Ólafur Ragnar er alls enginn sósíaldemókrati Sigurður. Enda á móti ESB-
aðild og Icesave. Var í upphafi þjóðlegur íhalds-framsóknarmaður eins og
ég í denn og nú orðinn ÞJÓÐHYGGJUMAÐUR eins og ég sem HÆGRI GRÆNN
í dag. Þannig að stemmingin passar algjörlega milli okkar í dag!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.4.2012 kl. 02:09
Takk fyrir góðan pistill Guðmundur ! Ólafur er ígildi þess að vera verndarvættur Íslands hans heilindum er hægt að treysta. Ólafur verður því áfram forseti Íslands.
Sólbjörg, 8.4.2012 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.