HÆGRI GRÆNIR styðja hvalveiðar! Hafna öfgum!
30.4.2012 | 00:22
DV.is segir formann Hægri grænna líkja formanni Náttúruverndarsamta
Íslands, Árna Finnsson, við öfgaumhverfissinna. Og vísar í frétt á Mbl.is
um að alþjóðleg dýraververndunarsamtök vilji að Íslendingar verði beittir
þrýstingi af USA og ESB um að hætta hvalveiðum.
Það er alveg rétt hjá formanni Hægri grænna að álíta ,,að nú hljóti
öfgaumhverfissinninn Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka
Íslands að fara upp í bandaríska sendiráðið, eins og um árið og pressa
á sendiherrann með þetta". ,, Kannski er þetta að hans undirlægi, hver
veit." spyr formaðurinn. Sem jaðrar við landráð þarna um árið!
Að sjálfsögðu eiga Íslendingar að veiða hval! Þótt ekki væri nema til
að halda við jafnvægi í lífríki hafsins. En einmitt hvalbeiðibann er efst á
kröfulista ESB gagnvart Íslendingum við ESB-aðild. Ekki bara makríll!
En hvers vegna beina þessi svokölluðu náttúruverndarsamtök ekki
spjótum sínum að sjálfum Bandaríkjunum? Einni mestu hvalveiðiþjóð
heims! Og hvers vegna lætur ESB hvaðveiðar USA sig vel líka? Vegna
þess að Bandaríkjamenn eru stórþjóð en Íslendingar ekki.
Svona öfgum og afskiptum af íslenzkum innanríkismálum á að bregðast
við af hörku og svara þeim hreint út eins og Guðmundur Franklín Jónsson
formaður Hægri grænna gerði á facebook sinni í gær.
Það hefði fleiri mátt gera!
Hvetja Bandaríkin og ESB til aðgerða gegn Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.