ALLT leyfilegt til varnar fullveldi og gegn IPA-styrkjum!
20.5.2012 | 00:18
Þeir þingmenn stjórnarandstöðu sem harðast hafa barist
gegn áform ríkisstjórnarinnar um breytingu á stjórnarskrá,
þannig að Ísland geti fórnað fullveldi sínu og gengið í ESB,
eiga þakkir skyldar. Baráttan til varnar fullveldi og sjálfstæði
Íslands eru engin takmörk sett! Ekki síður ef á það er ráðist
innanfrá af óþjóðlegum öflum, útsendurum erlendra afla og
ríkjasambands. Það er því GJÖRSAMLEGA ÚT Í HÖTT að ásaka
þá á Alþingi sem berjast fyrir fullveldi Íslands um málþóf!
ALLT ER LEYFILEGT Í SJÁLFSTÆÐIS- og ÞJÓÐFRELSISBARÁTTU!
Þeir sem tala um málþóf eru landsöluliðið í þágu ESB-aðildar.
Þjóðin hefur ALDREI beðið um nýja gjörbreytta stjórnarskrá!
Einungis BRUSSEL-valdið svo Ísland geti gengið í ESB. Þvert
á móti vill þjóðin ÁFRAMHALDANDI FULLVELDISÁKVÆÐI í
stjórnarskrá, sbr. niðurstaða 1000 manna þjóðfundar, ÞVERT
Á núverandi ráðabrugg stjórnvalda um breytingar á stjórnar-
skránni.
Það sama á um IPA-mútustyrki ESB sem núna eru til afgreiðslu
á Alþingi upp á 5.milljarða. Til breytinga á stjórnkerfi Íslands að
kröfu ESB um aðlögun að því. Meiriháttar atlaga að fullveldi Ís-
lands og VÍTAVERÐ afskipti af íslenzkum innanríkismálum. ALLT
ER ÞVÍ LÍKA LEYFILEGT hjá þingmönnum að koma í veg fyrir
það! Enda þjóðin ekki spurð og fyrir liggur YFIRGNÆFANDI meiri-
hluti hennar gegn ESB-AÐILD! Samþykki Alþingis á IPA-styrkjum
er STRÍÐSYFIRLÝSING meirihluta þess gegn þjóðinni. Og einnig
MEIRIHÁTTAR svik þeirra þingmanna sem segjast andvígir ESB-
aðild en samþykkja samt slíkt IPA-stórskerf inn í ESB.
Ömurlegast er svo að horfa upp á Hreyfinguna og Guðm. Stein-
gríms selja sig. Og þar með Dögun og Björt framtíð sem þessir
þingmenn tilheyra. Þ.e.a.s þar sem þessi öfl nú tilheyra sem ein
deild af mörgum innan móðurflokks sósíaldemókrata á Íslandi,
Samfylkingunni............
Talað í rúmar 35 klukkustundir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
"ALLT ER LEYFILEGT Í SJÁLFSTÆÐIS- og ÞJÓÐFRELSISBARÁTTU!
Þeir sem tala um málþóf eru landsöluliðið í þágu ESB-aðildar."
Hmm. Er ekki komin tími á hunang og te hjá þér Zumann og nærandi blund á eftir ?
hilmar jónsson, 20.5.2012 kl. 00:36
Það væri nær að setja þig í fangaklefa fyrir hótanir gegn alþingi, alþingismönnum og ríkisstjórn.
Jón Frímann Jónsson, 20.5.2012 kl. 00:55
MEIRIHÁTTAR STOLTUR að fá svona skilaboð frá framvarðasveit landsöluliðsins: Ekki síst frá Jóni Frímann sem hefur yfirgefið Ísland!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.5.2012 kl. 01:03
Heill og sæll Guðmundur Jónas - sem og aðrir gestir, þínir !
Hilmar og Jón Frímann !
Raunar; skrökvar Guðmundur síðuhafi öngvu til, í lýsingu sinni, á hinni allt í einu, ''bráðnauðsynlegu'' nýju Stjórnarskrá, sem Kommúnistar og kratar, hafa verið að halda á lofti, að undanförnu með Hreyfingar guf unum einnig, piltar.
Væri stjórnmálamönnum ÖLLUM; fyrr - sem nú, ekki nær að virða gildandi plagg, áður en þeir færu að kalla eftir öðru, og nýju ?
Og; ekki borðar sveltandi fólk, Stjórnarskrá þess lands - eða annarra, eins og þið vitið.
Jón Frímann !
Annar eins hugsuður; sem þú ert, á sviðum Jarðvísinda og Sólkerfa, ættir að sneiða alveg, fram hjá stjórnmálalegri umræðu, því svo virðist, sem hún hlaupi með þig, í gönur einar - sem ofsabræði; jafnvel, án eiginlegra tilefna, ágæti drengur.
Ykkur Hilmari að segja; er Guðmundur Jónas, einhver sá einlægasti þjóðernissinni, sem ég hefi kynnst - og tala ég þá, sem fyrrverandi þjóðernissinni, þar sem ég er nú AL þjóðasinni, í víðasta samhengi (það er til 100% sýnar, á veröldina), og fyrir allnokkru búinn að missa þá Tröllatrú á Íslendingum, sem ég hafði lengi vel, í ljósi sjálfbirgingsháttar og monts, allt of stórs hluta landsmanna, ágætu drengir.
Ráðlegg ykkur; Hilmar og Jón Frímann, að virða einlægni þá - sem órofa tiltrú á Íslandi og Íslendingum, sem Guðmundur Jónas sýnir okkur svo fölskvalaust, sem fyrir all nokkru, er horfin, úr mínum ranni, að minnsta kosti - og þarf ALLSTÓRT til, að komi til baka, á ný.
Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.5.2012 kl. 01:23
Sniðugt er það Guðmundur hvað mál þitt fer illa í þessa stíflusmiði andans, sem allir kommúnistar eru reyndar.
En Jón Frímann, ef einhver á að fara í fangelsi vegna hátternis síns nú síðastliðin fjögur ár þá eru það þau Jóhana og Steingrímur fyrir lygar, fals, svik og þjófnað.
Hrólfur Þ Hraundal, 20.5.2012 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.