Hatursáróður Fréttablaðsins gegn forseta hafin.


   Hvað með nýja ákvæði fjölmiðlalaga um hatursáróður? Ef skop-
myndbirting  Fréttablaðsins  af  forseta  Íslands al-nöktum með
tilheyrandi niðurlægingu og vanvirðingu fyrir forsetaembættinu
og forsetanum sjálfum, fellur ekki undir slíkt hatursákvæði, væri
fróðlegt að fá útskýringu á því..

   Og hvers vegna lætur ríkissaksóknari ekki málið til sín taka?
Honum ber beinlínis skylda til þess þegar æra og persóna for-
seta Íslands er dregin niður í svaðið með jafn afgerandi hætti
og í umræddri skopmyndbirtingu. Já hvers vegna er ritstjórinn
ekki kærður og látinn svara til saka?

   Þessi myndbirting hefur valdið óhug og viðbjóði hjá þjóðinni.
Hneykslan!  Og sýnir á hvað lágt plan forsetakosningarnar eru
að þróast.

   Ritstjóri Fréttablaðsins ætti að skammast sín! En gerir það
ekki. Því honum er EKKERT heilagt þegar  kemur að  því að
ráðast á allt sem gerir Íslendinga að FRJÁLSRI ÞJÓÐ. Ritstjórinn
sem fer hamförum í því að afhenda Ísland Brusselvaldinu  á
hönd.  Ritstjórinn  sem froðufeldi af ákefð sinni að binda Ís-
lendinga Icesave-skuldadrápsklyfjum út öldina. Gera hana
gjaldþrota til að þóknast valdhöfunum í Brussel. Þess vegna
á nú ÖLLU að tilkosta til að sverta forseta Íslands og koma
í veg fyrir hans endurkjör. Forsetanum sem bjargaði þjóðinni
frá Icesave-þjóðsvikunum og sem vill standa vörð um fullveldi
Íslands.  Gagnstætt viðhorfum ESB-ritstjóra Fréttablaðsins!   

   Slíkur hatursáróður ESB-sinna á forsetann og sem Frétta-
blaðið hefur nú hleypt af stokkunum og ætlar að stjórna mun
stórskaða  þá sjálfa! Því þjóðin mun nú þjappa sér saman sem
aldrei fyrr um forseta sinn, gegn hatursáróðri andþjóðlegra afla
og ömurlegs landssöluliðs..............  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Á Útvarpi Sögu í gær kom fram að teiknari þessarar ,,skopmyndar" Fréttarblaðsins og eiginmaður eins frambjóðendands væru nágir vinir
á facebook..........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.5.2012 kl. 01:26

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

.

.

.

  • Árvakran forsetann aldregi hyllir

  • Ólafur síðri, með skeifu á vör.

  • Valdið hann heillar, en valdið spillir,

  • valdið sem heftir þjóðanna fjör.

  • Daglega pennann þó dregur úr slíðri

  • dindillinn Ólafur síðri.

.

Nánar hér.

Jón Valur Jensson, 22.5.2012 kl. 03:16

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi mynd er til skammar, og niðurlægjandi fyrir blaðið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.5.2012 kl. 11:12

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Algerlega, Ásthildur. En Ólafur Stephensen leyfði ekki aðeins birtingu á þessu í Esb-blaði þeirra Jóns Ásgeirs, heldur varði hann birtinguna í svörum til DV. Þar var hins vegar Ólafur Ísleifsson hagfræðingur með verðuga gagnrýni á þessa grófu myndbirtingu.

En það er sem sé ljóst, að allt virðist nú orðið leyfilegt í svæsnum árásum Fréttablaðsmanna á forsetann. Keim af slíku, með öðrum, en lymskulegri neðanbeltishætti, mátti líta í klipptum og skornum skvaldursþætti Kolbeins Óttarssonar Proppé (Frá degi til dags) í sama Esb-Fréttablaði þennan þriðjudag. Ekki gat hann sem blaðamaður sagt á hlutlægan hátt frá svörum Ólafs Ragnars í fyrirspurnartíma lesenda í beinni línu DV, heldur varð hann að skrumskæla það allt til að skapa sem lélegasta mynd af forsetanum.

Tilgangurinn virðist þar helga meðalið, en kannski var þetta ekkert stökk fyrir Kolbein, fyrrverandi kommúnista, að beita þeirri gömlu siðareglu kommúnista (siðareglu sem t.d. Brynjólfur Bjarnason, formaður KFÍ og menntamálaráðherra um tíma, réttlætti undanbragðalaust í einu heimspekirita sinna).

Merkilegt annars, hvað gamlir kommúnistar og vinstri-öfgavillingar eru hrifnir af þessu Evrópusambandi: Árni Þór Sigurðsson (sem hjálpað var með sannfæringuna með 10 milljóna prívatstyrk frá Brussel), Jose Manuel Barroso, Štefan Füle og Daniel Cohn-Bendit!

Jón Valur Jensson, 23.5.2012 kl. 00:23

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Barroso er gamall Maóisti !

Jón Valur Jensson, 23.5.2012 kl. 00:24

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hrifningin af heildarlausna-útópíum virðist áfram teyma þessa menn á einhverjum eyrum, nú inn í Brussel-dýrðarríkið!

Jón Valur Jensson, 23.5.2012 kl. 00:25

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk félagi Jón Valur og Ásthildur. Engum á að koma að óvart dálæti vinstrisinna á ESB. Því það er sniðið að grunnhugmyndum þeirra um alheimssæluríki öreiganna. Takmarkalausri alþjóðahyggju. Sovétið gekk ekki upp, og nú er hið ofurmiðstýrða ESB himnasending þeirra.
Furðulegast er hins vegar hversu margir sem segjast borgarasinnaðir láta
glepjast af þessu. Og þeir sem efast og hallmæla eru afgreiddir þá sem
hægriöfgamenn.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 23.5.2012 kl. 20:37

8 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Síðast liðinn sunndudagsmorgunn líkti Gunnar Smári Egisson forseta vorum, Ólafi Ragnari Grímssyni, við erkiklerkinn Komenhi (í Iran) ! Þetta var íi þættinum SPRENGISANDUR á BYLGJUNNI.

Kv., KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 24.5.2012 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband