Sósíaldemókratarnir blómstra í Sjálfstæðisflokknum!


   Og enn halda sósíaldemókratarnir áfram að blómstra í
Sjálfstæðisflokknum  sem  aldrei fyrr.  Því nú  hefur  nýr
framkvæmdastjóri  fyrir ,,Já Ísland", sem berst fyrir ESB-
aðild Íslands, verið ráðinn. - Og að sjálfsögðu kemur við-
komandi, Sigurlaug Anna Jóhannesdóttir, einmitt  úr röðum
sósíaldemókratanna úr Sjálfstæðisflokknum. Hvað annað?

  Á sama tíma berst annar merkur sósíaldemókrati úr Sjálf-
stæðisflokknum mikið á  varðandi  aðildarviðræðurnar við
ESB . En einn af fyrrverandi formönnum flokksins og sem á
sæti í  samningarnefndinni við ESB, Þorsteinn Pálsson, hefur
farið mikið undanfarna daga. Segist enn gallharður ESB-sinni,
þrátt fyrir ágjafir,  og óskar eftir enn lengri tíma í viðræðurnar
góðu  og aðlögun Íslands að ESB.

   Já  það væri sýnd að segja að sósíaldemókratarnir fái ekki
að grassera í Sjálfstæðisflokknum. Og nú sem aldrei fyrr!
  

mbl.is Nýr framkvæmdastjóri Já Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband