Hreinsanir hafnar hjá RÚV í þágu ESB-aðildar
1.9.2012 | 00:38
Ríkisútvarpið hefur síðustu ár verið gróflega pólitískt misnotað
af sósíaldemókrötum. Ekki síst eftir að hinn sósíaldemókrataíski
menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, réði sósíaldemókratann Pál Magnússon sem út-
varpstjóra RÚV. Sem var meiriháttar skandall!
Síðan þá hefur RÚV verið rekið sem sérstök málpípa krata og
kommúnista. Hæst bar einhliða áróður RÚV í Icesave í þágu Ice-
sinna. Ásamt því að reka linnulausan áróður fyrir málstað ESB-
sinna. En hvort tveggja birtist svo í hatursáróðrinum gegn for-
seta Íslands, bæði í aðdraganda forsetakosninganna, en ekki
síður eftir úrslít þeirra. Þegar forsetinn hefur nánast verið
lagður í einelti síðustu vikurnar af fréttastofu RÚV.
Og enn skal herða tökin á pólitískri misnotkun á RÚV þegar nú
verulega hallar undir fæti hjá málstað ESB-sinna. Einum vinsæl-
asta fréttamanni á RÚV á Suðurlandi, Magnúsi Hlyni Hreiðars-
syni, hefur nú verið rekinn úr starfi. Alveg örugglega vegna
tregðu hans til fylgilags við hina ESB-sinnuðu fréttastofu RÚV,
komandi úr einu sterkasta landbúnaðasvæði Íslands. Og hins að
við brottrekstur hans sparast eitthvað upp í fréttamannastöðu
RÚV í Brusell, sem ESB-sinnar innan RÚV og utan telja afar brínt
að verði að veruleika sem fyrst.
Eitt af fyrstu verkefnum nýrrar ríkissstjórnar heimastjórnar-
sinnaðra íhaldsmanna verður að stokka upp RÚV frá grunni.
Binda endi á hið botnlausa fjármálasukk og óstjórn sem þar
hefur fengið að grassera gegnum tíðina, og taka algjörlega
fyrir hina pólitísku misnotkun sem þar hefur viðgengist. Ekki
síst í þágu óþjóðhollra afla, sbr. Icesave og ESB-aðildarferlið.
Mælirinn er fullur!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Því miður er allt, allt of mikið til í því, sem þú skrifar hér, Guðmundur Jónas, m.a. um Icesave- og Esb- og forseta-umfjöllun Rúv, fyrir utan fjármálaspillingu ríkisstjórnarinnar sem fólgin er í óstöðvandi fjáraustri í þetta Parkinsonsbákn, jafnvel á erfiðustu krepputímum.
Og nú er það víst óskaverkefni þeirra að hafa fréttamann í fullu starfi í Esb-Brussuseli !
Jón Valur Jensson, 1.9.2012 kl. 06:15
Takk félagi og samherji Jón Valur!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 1.9.2012 kl. 21:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.