Bandalag Dögunar, ESB-sinna og stjórnlagaráðs. Brandari!


    Bráðfyndið að fylgjast með nýjustu uppákomunni í íslenzkum
stjórnmálum. Hin  nýju  stjórnmálasamtök  DÖGUN  sem  m.a
Hreyfingin og Frjálslyndi-flokkurinn standa að, ferðast nú  um
landið  á gamalli rútu (vonandi skoðari) til að bera út fagnaðar-
erindi Dögunar, sem enginn veit hvað er,  og stjórnlagaráðs.
Með Þorvald Gylfason, eðal  krata  og  aðal talsmanns  ESB-
trúboðsins á Íslandi í forystu. 

  Þátttaka Þorvaldar Gylfasonar í rútuferðinni vekur sérstaka
athygli. En Þorvaldur tókst með einstakri lagni að dáleiða marga
stjórnlagaráðsmenn, þannig að í tillögum ráðsins eru öll fullveldis-
ákvæði gömlu stjórnarskrárinnar feld burtu, svo Ísland geti   nú
örugglega gerst  aðili  að  ESB  verða stjórnarskrárbreytingarnar
samþykktar.  Þá  vekur  það einnig  athygli að  fyrrum  formaður
Frjálslyndaflokksins Guðjón Arnar Kristjánsson er einnig með í för
í ESB-rútu Dögunar. Og hefur augljóslega einnig  þá heldur betur
verið dáleiddur!

  Bandalag Dögunar, ESB-sinna og stjórnlagaráðs er því orðið
staðreynd  í boði Samfylkingarinnar og sendiráðs ESB á Íslandi.
Enda verður kosningarþátttaka 20 okt. í samræmi við það!

  Brandari!

   www.xg.is

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !

Mér; er nú orðið svo þungt í skapi, að helzt kemur mér til hugar, að hætta algjörlega, að skrifa stafkrók frekar, á minni síðu - fremur en annarra, fornvinur góður.

Ég álít Ísland og Íslendinga einfaldlega; vera ruslahaugamat, eins og mál hafa hér þróast, að undanförnu.

Kvensnipt; lögfræði gála - skammtar sér 284.000.- Krónur í dags laun, á sama tíma, og sívaxandi fjöldi samlanda okkar, leitar sér matarbita, í öskutunnum, Guðmundur minn.

Reyndu ekki; að telja mér hughvarf - vonbrigði mín, með Hægri græna, eru svo enn einn þátturinn - flokkur, sem fylgir í blindni, NATÓ aðild áframhaldandi - sem og EFTA, á ekki upp á pallborð mitt, og ekki lagar ritskoðunarhyggja Guðmundar Franklíns heldur, fyrir ykkur (lokað á möguleika minn - sem margra annarra, að setja inn athugasemdir, á ykkar síðu, hér, á Mbl. vefnum), til dæmis.

Breytir samt öngvu; um óbjagaða vináttu okkar - eftir sem áður, Guðmundur minn.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 00:36

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Já þetta er einhver sú einkennilegasta mynd sem íslenskt lýðskrum hefur á sig tekið, til lang tíma.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.9.2012 kl. 02:50

3 identicon

Kæri Óskar, þakka þér kærlega fyrir skemmtileg og skorinort blogg. Hægri grænir eru með lokað fyrir athugasemdakerfið á Mbl, en það er opið á Facebook við Moggabloggið. Við einfaldlega getum ekki vaktað Mbl bloggið á Mbl.is vegna þess að við þyrftum þá að hafa menn í fullri vinnu við það, einmitt vegna frómra Ljósvíkinga athugasemdakerfanna eins og þín. Í heimspeki kommúnismans átti munaðarlausi Ljósvíkingurinn að vera  í burðarpoka móður sinnar sem hvítt blað, tær og óspjölluð persóna sem átti eftir að feta þann sama veg og þúsundir annarra Íslendinga hafa gert frá ómuna tíð. Ljósvíkingur Laxness var borin í poka í æsku af móður sinni sem skildi hann eftir sem hreppsómaga á Fæti undir Fótarfæti, en hann var engin venjulegur drengur og þurfti að hafa mikið fyrir honum. Þetta er ástæðan fyrir leti okkar og nú verða Ljósvíkingar þessa horfna heims að byrja á að koma sér upp Facebook síðu til þess að fylgjast með, þar eru hlutirnir að gerast. Með bestu kveðju, Guðmundur Franklín Jónsson

Guðmundur Franklín Jónsson (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 07:12

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk gott fólk fyrir innlegg ykkar hér. Óskar minn. Eins og formaður okkar Hægri grænna bendir réttilega á er Moggablogg HG ekki bara lokað á þig, heldur
líka mig og alla aðra, og færir fyrir því gild rök. Þannig hvet þig til að harsla þér
völl líka á facebookinni því þar eru HG aðgengilegir og opnir allri umræðu.
Veit ekki hvers vegna  þú ert svona í nöp við okkur Hægri græna hafandi verið í Frjálslyndaflokknum, eða stutt þá til margra ára. Og veit ekki annað  en að
þeir hafi stutt Nato og Efta aðild á þeim tíma. En ef þú kynnir þér stefnu HG á
www.xg.is muntu komast að því að þetta er einn ákveðnasti þjóðfrelsisflokkurinn til þessa, og þá ekki hvað síst í Evrópumálum.
Með bestu kveðjum. Guðm.Jónas 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.9.2012 kl. 10:47

5 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Ágætu Nafnar; Franklín, og Jónas !

Þakka ykkur báðum; fyrir drengileg andsvörin, en STASI yfirbragð það, sem Fésisbókar umhaldarar, eru sagðir viðhalda á þeim vettvangi, gerir það að verkum, að þar vilji ég ekki innvinklast, á nokkra vegu - eftir sögn staðkunnugra, þar um slóðir, ku kennitala viðkomandi þess, sem aðrar persónulegar upplýsingar, innilokast hjá bókarhöldurum, þó tiltekinn notandi, hafi yfirgefið bókina, einhverra ástæðna vegna.

Því; mættuð þið alveg endurskoða möguleika almenns aðgengis, að síðu ykkar, t.d.; hér á Mbl. vefnum, piltar.

Guðmundur Jónas !

NATÓ aðild Íslands; er með öllu óforsvaranleg, þar sem bandalagið er eitt alversta setur hryðjuverka Vestrænna Heimsvaldasinna - og með slíkum eiga Íslendingar öngva samleið - eða;; hvað ?

EFTA aðildin; minnir okkur einnig á, að þau samtök, eru ein undirdeilda ESB, sem ég hugði ykkur nafnana jafn fráhverfa, sem ég er - og fjöldi annarra samlanda, aldeilis. Þess utan; á Norður- Ameríkuríkið Ísland, ekki nokkra samleið, sem Evrópskum frekju- og snobb klúbbum.

Þannig að; ljóst má vera, að öngva eigum við samleiðina, hugmynda fræðilega, ágætu nafnar - þar sem flokkur ykkar, vill jafnframt viðhalda því þingræðis fyrirkomulagi, sem ég er alfarið andvígur, þar sem ég aðhyllist fámennisstjórn sterkra manna - úr frumframleiðslugreinum atvinnulífsins, auk iðngreina, svo; einnig fram komi.

Með beztu kveðjum; - og þökkum fyrir einarðleg andsvör, ykkar /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2012 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband