Framsókn eyðir sjálfri sér ! Hægri grænir efla sig!
29.10.2012 | 00:14
Dapurlegt að horfa upp á elsta flokk landsins eyða sjálfum sér.
Enda pólitíska ímyndin engin orðin og stefnan óljóst miðjumoð,
sem enginn veit hvert stefnir. Og nú síðast er haldið upp á meiri-
háttar stríðsátök í Norðausturkjördæmi í boði formannsins.
Ótrúlegt!
Já dapurlegt! Dapurlegt var að horfa upp á Framsókn nánust
hverfa í borginni undir pilsfaldri sósíaldemókrata í hræðslubanda-
lagi vinstrimanna R-listanum í heil 12 ár. Fyrir vikið er flokkurinn
nú horfinn úr borgarstjórn Reykjavíkur. Og allt bendir til að sama
gerist í næstu þingkosningum. Enda flúði formaðurinn úr borginni
út á land um von um öruggt sæti.
Já dapurlegt hvernig hinir ESB-sinnuðu sósíaldemókratar náðu
tökum á flokknum undir forystu Halldórs Ásgrímssonar og síðast
Jóns Sigurðssonar. Með þeim afleiðingum að stór hluti þjóðhollra
stuðningsmanna og kjósenda yfirgáfu flokkinn. Þar á meðal sá
sem þetta skrifar.
Þegar ímynd flokka hverfur er stutt í endalokin. Sú verður
raunin með Framsókn. Því að tala með tungum tveim í pólitík
gengur ekki til lengdar. Og allra síst þegar flokkserjur bætast
við.
Fyrir borgarasinnað þjóðhyggjufólk með skýra pólitíska sýn og
ímynd á hreinu er valið auðvelt í dag. HÆGRI GRÆNIR, flokkur
fólksins. Enda efla HÆGRI GRÆNIR sig með degi hverjum!
www.xg.is www.afram-island.is/magasin.pdf
Líst vel á tvöfalt kjördæmisþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki er ástandið betra í mínum gamla flokki, Sjálfstæðisflokknum ! Ég veit ekkkert, hvað ég á að kjósa, Guðmundur? Þú segir H-grænir, sem eru kannski með hreinan skjöld ? Ég ætla a.m.k. að skoða minn gang vel, áðuren ég kýs í vor!
Kveðja,KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 29.10.2012 kl. 12:47
Hvet þig að skoða HÆGRI GRÆNA Kristján www.xg.is Þeir eru mín niðurstaða.
www.afram-island.is/magasin.pdf
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.10.2012 kl. 16:13
Já, Guðmundur minn, ég efast ekki um, að þú sért ærlegur maður, en hvað með nafna þinn formanninn. Sumir segja, að hann sé sleipur spekulant með skrautlega fortíð ? Sem sagt varasamur lukkuriddari og fleira í þeim dúr ?
Nú er það svo, allir höfum við fortíð og sumt í henni kann að vera skuggalegt, en allir eiga að fá tækifæri til að gera betur, jafnvei þótt um fleiri en eitt axarskaft væri að tefla.
Fræddu mig um foringjann , og ég mun reyna að lesa það með opnum og fordómalausum huga. Svo sjáum við til.
Kveðja, KPG.
Kristján P. Gudmundsson, 30.10.2012 kl. 05:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.