X-D nýtur ekki traust ESB-andstæðinga í SV! Kjósum Hægri græna!


   Væri sá er þetta skrifar búsettur í  Sv-kjördæmi gæti hann
ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn. Og svo mun vera um  fjölda
annarra ESB-andstæðinga eftir að úrslit í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna liggur nú þar  fyrir.

  Ástæðan er einföld!

  Afgerandi sigur ESB-sinna til margra ára í annað sæti listans
veldur óhug, og óvænts sigurs ESB-viðræðusinna í 4 sætið er
einnig mikið áhyggjuefni. Við bætist svo ótrúverðugleiki for-
manns flokksins í Evrópumálum sem leiðir listann. Stjórnmála-
mannsins sem sveik flokksmenn sína og þjóðina í Icesave.

   Kastljósið berst nú að prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík eftir viku. Þar eru líkar blikur á lofti um að ESB-sinnar smygli
sig inn á listann, eins og kom fram á Útvari Sögu í gær. En einn
innhringjandi sagðist hafa lagt nokkrar spurningar fyrir fram-
bjóðendur í prófkjörinu m.a um Evrópumál,  og kom á óvart
hversu svör margra þeirra  voru loðin. Eða svöruðu ekki.

   Ljóst er að Sjálfstæðisflokknum  verður EKKI treystandi  í
Evrópumálum í komandi kosningum, ekki frekar en í Icesave. 
Auk þess skaffandi fólk úr sínum röðum í fjölmargar lykilstöður
í aðildarferlið að ESB og sem hér hefur verið marg bent á.

   Guðmundur Franklín Jónsson formaður HÆGRI GRÆNNA
hefur sagt opinberlega að hann hyggist leiða lista HG í SV-
kjördæmi. Þá fengu sósíaldemókratarnir og ESB-sinnaðir í
Sjálfstæðisflokknum þar hættulegan og verðugan andstæð-
ing. Því hinn stóri hópur borgarasinnaðs þjóðhyggjufólks
mun nú horfa til HÆGRI GRÆNNA þegar hann fær nú loks
tækifæri að styðja og kjósa áhugavert stjórnmálaafl  til
hægri í komandi kosningum.

     www.xg.is  www.afram-island.is/magasin.pdf

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TómasHa

Trúir þú þessu bulli? Ef svo er, af hverju mælast HG varla í skoðanakönnunum? Er þessi stóri hópur sem horfir til HG feiminn þegar Capacent hringir?

TómasHa, 17.11.2012 kl. 01:32

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Capacent er löngu hætt að hringja Tómas. Bara þar netkönnun í áskrift!
Enda mælast Hægri grænir mjög vel t.d á Bylgjunni, Útvarpi Sögu og víðar.
Og hvers vegna ættu sannir þjóðhollir hægrimenn að kjósa þennan ÖMURLEGA
sósíaldemókratiska Sjálfstæðisflokk, sem lagð Ísland nánast í rúst fyrir örfáum
árum?  Svaraðu frekar þeirri spurningu?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.11.2012 kl. 01:42

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já trúir þú þessu bulli ÞÍNU?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.11.2012 kl. 01:44

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Áður en þú vænir mig um eitthvað bull !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.11.2012 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband