Ásmundur misnotar Heimssýn í pólitískum tilgangi! SKANDALL!
12.12.2012 | 00:22
Nú er komið á daginn að árásir Ásmundar Einars Daðasonar
formanns Heimssýnar og þingmanns Framsóknar, á Pál Vil-
hjálmsson framkvæmdastjóra Heimssýnar, fyrir að segja
sannleikann um Vinstri Græna í Evrópumálum, hefur djúpar póli-
tískar rætur. Svo djúpar, að um hreina pólitíska misnotkun
Ásmundar á samtökunum er að ræða. SKANDALL! Og fyrir það
VERÐUR Ásmundur að hverfa úr Heimssýn þegar í stað!
Allir vita úr hvaða pólitískum jarðvegi Ásmundur Einar er kom-
inn. Vinstri-grænum forvera hérlendra kommúnista og annarra
vinstrisinnaðra róttæklinga. Vinstrimennska Ásmundar hefur
því ekkert breyst við það eitt að ganga um stundasakar til liðs
við miðjumoð Framsóknar. Nei. Hans draumur er að Framsókn
blási nýju lífi í króga sinn og verði þriðja hjólið undir nýrri vinstri-
stjórn að afloknum kosningum. - ÞESS VEGNA MÁ ALLS EKKI
MÓÐGA OG SÆRA fyrrum samherja Ásmundar í Vinstri grænum
nú rétt fyrir kosningar. ÞESS VEGNA VARÐ AÐ STÖÐVA PÁL
STRAX í neikvæðum skrifum hans um ESB-sinnaða sósíalíska
vini formanns Heimsýnar í Vinstri grænum. - Myndun nýrrar
vinstristjórnar með Ásmundi og Framsókn var og er í húfi. Hin
pólitíska misnotkun Ásmundar á Heimssýn er því æpandi!
Vonandi heldur Páll Vilhjálmsson framkvæmdastjóri Heims-
sýnar áfram sinni réttmætri gagnrýni á hinn ESB-sinnaða flokk
Vinstri grænna á vettvangi Heimssýnar. Því slíkur sannur þjóð-
frelsis-og fullveldissinni og Páll er ekki þekktur fyrir að láta rit-
skoða sig. Allra síst laumu-komma eins og Ásmund Einar Daða-
son, er bæði studdi flokk og ríkisstjórn sem sótti um aðild
Íslands að ESB á sínum tíma. Og sem vill nú framlengja líf hinnar
ömurlegu ESB-sinnuðu vinstristjórnar með aðkomu Framsóknar.
Sbr. óskhyggja Svavars Gestssonar Icesave-kóngs í Silfri Egils
s.l sunnudag.
Löngu kominn tími til að ESB-andstæðingar rísi upp og láti nú
hart mæta hörðu. Hreinsun Heimssýnar af ALLRI ESB-óværu í
boði formannsins yrði verðugt skref. Og ALLIR VG-liðar sem
álpuðust þar inn með formanninum hverfi þaðan HIÐ FYRSTA!
www.xg.is
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nýjustu frettir eru að Páll hefur hætt sem framkvæmdastjóri Heimssýnar og
í stjórn hennar! Laumi-komminn Ásmundur hefur þar tekist æthlutunarverk
sitt nú í boði Framsóknar! ÖMURLEGT!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2012 kl. 01:09
Hef úthýst Heimssýnar-blogginu af mínu bloggi! Er ekki í Heimssýn undir stjórn
laumu-komma!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2012 kl. 01:28
Styrmir Gunnarsson meinar að ESB sé vel að friðarverðlaunum Nóbels komið. Hvernig á að skilja orð Heimsýnar-mannsins Styrmis Gunnarssonar? Samþykkir þú hann í Heimssýn?
Það væri fróðlegt að fá þína greiningu á orðum Styrmis, þegar horft er til stríðsins í Júgóslavíu? Eins á mótmælum almennings síðustu misserin á bankaránum og niðurskurði í ESB-löndunum?
ESB studdi, og styður enn dráp á saklausu fólki og hertöku í Lýbíu og Sýrlandi.
Er ESB virkilega vel að friðarverðlaunum Nóbels komið? Heimssýn er ekki samtök fyrir fólk sem styður hernað ESB um víða veröld!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.12.2012 kl. 08:35
Anna. Deili ekki pólitiskum skoðunum með Stýrmi, enda ekki í sama flokki og hann. Misnotkun norskra krata á friðarverðun Nobels til ESB er brandari!
Þannig er mjög ósammála Styrmi þar!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2012 kl. 09:11
Guðmundur. Gott að heyra að þú sért ósammála Styrmi þar. Torbjörn Jaglands-nóbelshneykslið er afhjúpandi fyrir hvers konar spilling viðgengst í fílabeinsturnum EES-ESB-"friðar/4-frelsisbandalagsins.
Það er líklega best fyrir okkur hér á eyjunni í norðri, að standa saman í stóru málunum. Innanlands-flokkaklíku-rugl í þessu stóra máli málanna er til þess eins gert, að sundra þeirri litlu samstöðu og styrk sem enn er til staðar hér á landi. Þeir háu í ESB kunna að sundra þjóðum, og hertaka ríkisstjórnir þjóðanna. Það eru engin vettlingatök hjá þeim háu í Brussel!
Í innanríkispólitíkinni getum við svo hagað okkur eins og ósamála slagsmálahundar og villikettir. Rifist, talað hreint út, beðist afsökunar á mannlegum breyskleikum (reiðiframmúrakstri), fyrirgefið sjálfum okkur og öðrum, og rökrætt málin að sanngjarnri, réttlátri og lýðræðislegri niðurstöðu, eins og við séum með þokkalega fullu viti, tillitsemi og siðferðisþroska. (Það gengur okkur ekki alltaf vel, en verðum að læra það).
Ísland er of fámenn þjóð til að standa í þrætum og þrasi. Hvort erum við íslandsbúar, eða sundraðar herteknar flokkaklíkur? Við verðum að standa saman, og hætta að sá ófriðar-fræjum í garða náunganna. Hver vill uppskeruna af slíkum ófriðar-fræjum?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.12.2012 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.