Jón Bjarna og Atli styðja áfram ESB-ríkisstjórnina sína.
12.3.2013 | 00:36
Enn og aftur sannast að EKKERT er að marka þá vinstrimenn,
sem í orði segjast mótfallnir ESB-aðild en gera allt annað í verki.
Nýjasta dæmið eru þeir félagar Jón Bjarnason og Atli Gíslason
fyrrv. þingmenn Vinstri grænna. Í gær fengu þeir gullið tækifæri
til að sýna ESB-andstöðu sína Í VERKI með því að styðja van-
traust á núverandi ríkisstjórn sem berst fyrir ESB-aðild. Það
GERÐU ÞEIR EKKI! Jón Bjarnason sat hjá með fáránlegar af-
sakanir, og raggeitin Atli Gísla lét ekki sjá sig með fjarveru
sinni.
Þarna hefðu þeir félagar geta sýnt heilindin sín í Evrópumálum
á tvennan hátt. Lýst frati á hina ESB-væddu stjórnarskrá sem
ESB-trúboðið vill koma í gegn, og andstöðu við sjálfa ESB-ríkis-
stjórnina. Hvorugt gerðu þeir!
Hér hefur margsinnis verið haldið fram að vinstrimönnum sé
alls ekki treystandi fyrir horn í fullveldis-og þjóðfrelsismálum.
Vinstri grænir eru besta dæmið um það í dag og núverandi vinstri-
stjórn. En nú á enn að reyna að blekkja kjósendur. Nú á enn að
reyna að dulbúast ESB-andstöðuklæðum. Svokallaður Regnbogi
sem þeir félagar eru bendlaðir við og einhver Alþýðufylking ráð-
viltra róktæklinga á nú að reyna að prufukeyra til að blekkja
kjósendur enn einu sinni í fullveldis og þjóðfrelsismálum. Hvorugt
mun takast af þeirri einfaldri ástæðu að vinstrimennskan öll
byggir á alþjóðlegri ÖFGAHYGGJU sem ÆTÍÐ er andstæð þjóð-
legum viðhorfum og gildum.
Svo einfalt er það nú!
![]() |
Tillaga um vantraust felld á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.