Icesavestjórnin leggst hundflöt fyrir hrægammana!
27.3.2013 | 00:25
Gagnstætt okkar stefnu HÆGRI GRÆNNA, flokks fólksins,
ætlar hin illræmda Icesavestjórn bersýnilega að enda sína
stjórnartíð með jafnmiklum þjóðsvikum og hún hóf feril
sinn. Í stað Icesave-þjóðsvikanna bendir allt til þess að
hún hyggst leggjast hundflöt fyrir hrægammasjóði gömlu
bankanna. Og þvæla lífeyrissjóðum landsmanna í glæpinn,
sbr. frétt RÚV í gærkvöldi.
Með ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM verður að koma í veg
fyrir slík þjóðarsvik. Erlendu hrægammasjóðirnir (e.vulture
funds) keyptu kröfurnar í þrotabú gömlu bankanna á meiri-
háttar hrakvirði, en vilja nú fá þá greidda í toppverði og það
í erlendum gjaldeyri landsmanna sem ekki er til!
Tek undir með HÆGRI GRÆNUM, flokki fólksins, að allt
slíkt komi ekki til mála! Neyða á þessa glæpasjóði til að
selja kröfurnar á hrakvirði og það í íslenskum krónum.
Krefja þá um upprunavottorðs fjármagns og fulla upplýs-
ingaskyldu um alla endanlega eigendur, nafn og heimilis-
fang. Auk þess á að banna erlendum hrægammasóðum að
eiga í íslenskum fjármálafyrirtækjum. Sem vinstrastjórnin
hefur GJÖRSAMLEGA BRUGÐIST að gera.
Það að fara að blanda lífeyrissjóðum landsmanna í þetta
meiriháttar fjármálabrask vogunarsjóði hrægamma hlýtur
að kalla á hörð viðbrögð.
Allavega mótmælum við Hægri grænir KRÖFTUGLEGA!
www.xg.is
ÞETTA VERÐUR AÐ STÖÐVA!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Eru ekki íslenskir aðilar sem teljast eiga þessar kröfur,? Þess vegna liggur á að koma þeim út áður en aðrir taka við valdataumunum.
Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2013 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.