Sendum varðskip til stuðnings Færeyingum!


    Baldur Ágústsson kom með þá snjöllu hugmynd í dag á
Útvarpi Sögu, að Íslendingar sendu varðskip til Færeyja,
til stuðnings Færeyingum í fiskveiðastríði þeirra við ESB.
En ESB hefur einnig hótað okkur viðskiptastríði eins og 
kunnugt er vegna veiða okkar á makríl í eigin  lögsögu.

   Vert er að taka undir þessa snjöllu hugmynd Baldurs.
Senda  flaggskip  okkar  vs  ÞÓR  til Færeyja með fríðu 
föruneyti, s.s sjávar-eða utanríkisráðherra, til að árétta
með táknrænum afgerandi hætti og svo að eftir verði tekið,
stuðning okkar við frændur vora í Færeyjum. Við látum ekki
fyrrum nýlenduveldi innan ESB með stuðningi Brussel berja
okkur til hlýðni, þótt smáir séum.

   Aumkunarvert er að horfa á Dani með engin áhrif innan ESB.
Hafa EKKERT að segja við ESB borðið til varnar Færeyingum,
sem þó tilheyra Danaveldi.  Meiri afhjúpun á algjöru fullveldis-
afsali er ekki hægt að hugsa sér, gagnstætt gaspri ESB-sinna
um annað.  Danmörk er eitt besta dæmið um það í dag!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðmundur Jónas; æfinlega !

Mæli fyllilega; með sendingu Þórs, til Færeyja - en fremur þætti klént, í siðuðum löndum a.m.k., að með í för væru HAND ÓNÝTIR stjórnmálamenn hérlendir, fornvinur góður.

Veltu fyrir þér; Guðmundur Jónas, til hvers úrhrökin 63 (á alþingi), séu yfirleitt á launum, hjá okkur skattgreiðendum ?

Með beztu kveðjum; sem oftar - úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.8.2013 kl. 23:03

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Svartur ertu Óskar,í merkingunni vantrú á strákana í brúnni. Því skyldum við ekki taka almennilega á því í réttlátri reiði,þegar stjórnarandstaðan hefur beitt brögðum frá fyrstu tíð við stýrið á þjóðarskútunni.

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2013 kl. 01:11

3 identicon

Komið þið sæl; á ný !

Nafna mín; Kristjánsdóttir !

''Strákarnir í brúnni''; eru nákvæmlega sama SVIKA- og GLÆPA hyskið, eins og félagar þeirra, hinir.

Ertu hætt; að taka eftir þróun mála, hér innanlands, ágæta fornvinkona / eða;; hvað ?

Stjórn; stjórnarandstaða - NÁKVÆMLEGA sama hyskið, nafna mín !!!

Ekki lakari kveðjur; hinum fyrri, vitaskuld /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.8.2013 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband