Norrænir krataforingjar með gróflega íhlutun.



   Sá sögulegi atburður gerðist í fréttum Stöðvar 2
í kvöld að tveir norrænir krataforingjar komu fram
í íslenzkum fjölmiðli á flokksþingi Samfylkingarinnar,
með grófa íhlutun í íslenzk innanríkismál.

   Þetta voru þær stöllur  Mona Sahlin formaður
danskra krata og Hella Thorming Schmidt formaður
sænskra krata. Í viðtalinu lýstu þær yfir ánægju
sinni með Ingibjörgu Sólrúni Gísladóttir og vonuðust
eftir að hún og flokkur hennar skipuðu næstu ríkis-
stjórn Íslands. - Þetta kallast GRÓF ÍHLUTUN í
íslenzk innanríkismál og það ÖRFÁUM vikum fyrir
alþingiskosningar á Íslandi. Sem íslenzkur ríkis-
borgari og kjósandi mótmæli ég þessari erlendu
íhlutun kratanna HARÐLEGA.  Þetta er bæði í senn
hneyksli og vítaverð tilraun fulltrúa  erlendra
pólitískra afla til að hafa áhrif á úrslit þingkosninga
í íslenzka lýðveldinu 12 maí n.k.

    Alþjóðahyggja sósíaldemókratanna er með ein-
dæmum orðin. Samfylkingin virðist orðin fjarstýrð
frá skandinavisku krataflokkunum á Norðurlöndum.
Slíkum flokki er ALLS EKKI trystandi fyrir ríkisstjórn
Íslands.  Enda fylgistapið í samræmi við það.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Vinur minn, sem hefur starfað hjá Venstre í Danmörku, segir að dönsk stjórnmál hafi undanfarin ár snúist um að aðrir flokkar keppast við að taka við fylginu af krötunum sem hafa hrunið úr hreinum meirihluta niður undir þriðjung. Keyrt hafi um þverbak þegar Helle Thorning-Schmidt tók við flokknum. Það kvað svo rammt við að hún bað foringja hinna stjórnarandstöðuflokkanna um að gefa sér andrými sem leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Ekki skrítið að ISG horfi til hennar, þjáningarsystur sinnar.

Gestur Guðjónsson, 13.4.2007 kl. 20:13

2 Smámynd: Kristján Pétursson

Guðmundur, hvenær voru það gróf inngrip í íslensk innanríkismál,að fá erlenda gesti í heimsókn á flokksþing? Jafnaðarmannafl.á Norðurlöndum hafa um langan tíma haft mikið og gott samstarf,sem hefur verið íslenskum stjórnmálum almennt til framdráttar á mörgum sviðum þjóðlífsins. Jafnaðarmannafl.á Norðurlöndum komu þessum ríkjum í fremstu röð í heimimum á lýðræðislegum grundvelli.Því miður hefur Framsóknarfl.enga slíka flokka að leita til,væri þeim þó brýnt að fá  einhverja leiðsögn á sínum vanda.

Kristján Pétursson, 13.4.2007 kl. 21:25

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Kristján. Þetta er alveg EINSTÖK PÓLITÍSK ERLEND ÍHLUTUN því
þessi ..heimsókn" norrænu krataforingjanna gerist KORTER FYRIR
ÞINGKOSNINGAR Á ÍSLANDI. Að þær ,,stöllur" skyldu svo koma í
BEINT íslenzkt sjónvarpsviðtal sem sjónvarpað var um ALLT Ísland
ákallandi til íslenzkra kjósenda að kjósa Ingibjörgu og krataflokk
hennar 13 maí er GRÓFASTA PÓLISKA ERLENDA ÍHLUTUNIN sem
hefur átt sér stað svo ég man eftir.  En þið kratarnir sjáið auðvitað
EKKERT við þetta viljandi AFSALA STÓRUM HLUTA af fullveldi
Íslands og sjálfstæði yfir til Brussel!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.4.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband