Hægri grænir orðnir skýr valkostur í dag !
30.8.2015 | 14:22
Ekki bara óánægðir sjálfstæðis- og framsóknar-
menn geta nú horft til Hægri græna. Heldur allt
þjóðholt borgarasinnað fólk. Já framsýnt og
ábyrgt þjóðhyggjufólk í því mikla umróti og
upplausn sem við blasir í stjórnmálunum í dag,
bæði hérlendis sem erlendis.
Hægri grænir eru nú í óða önn að byggja sig upp
undir forystu okkar nýja formanns, Helga Helga-
sonar, stjórnmálafræðings. Sérstakt framkvæmda-
ráð við hlið stjórnarinnar hefur verið skipað
sem heldur nú reglulega fundi. Ályktanar frá
5 ágúst vöktu t.d mikla athylgi.
Hægri grænir eru eini stjórnmálaflokkurinn á
Íslandi í dag sem skilgreinir sig til hægri.Og
því eina aflið sem getur fyllt það alvarlega
tómarúm sem á hægri kantinum er í íslenskum
stjórnmálum.
Mikil átök eru fyrirsjáanleg í stjórnmálum
Evrópu, einnig á Íslandi. Við blasir upplausn
og glundroði í ríkjum ESB ef framheldur sem
horfir. Schengen-landamæri ESB sem Ísland er
illu heilli aðili að eru hriplek, sem er að
valda öngþveiti í Evrópu og pólitískum átökum.
Hægri grænir eru eini stjórnmálaflokkurinn á
Íslandi sem virðist hafa djörfung og dug til
að sporna við slíku, enda fær hann bágt fyrir
af vinstriöfgasinnum, og er það vel!
Frjálslyndir og víðsýnir þjóðhyggjuflokkar eru
nú víðast hvar í mikilli sókn í Evrópu. Gegn
ofurmiðstýringu og yfirþjóðlegu valdi ESB,
arftaka gamla Sovétsins. Meðan hálfvitahátt-
urinn nær hámarki á Íslandi þar sem anarkistar,
Píratar skora hæst, og gerir Ísland að alþjóð-
legu pólitísku viðundri um þessar mundir! En
anarkistar hafa hvergi í heiminum náð fótfestu.
Sem sýnir upplausnina á Íslandi í dag.
Hægri grænir, sem stofnaðir voru á Þingvöllum
17 júní 2010, hvetja því alla þjóðholla borgara-
sinna að koma til liðs við flokkin. Íslandi og
þjóð vorri til heilla!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þín orð:
"Hægri grænir eru eini stjórnmálaflokkurinn á
Íslandi í dag sem skilgreinir sig til hægri".
Hefur xd ekki skilgreint sig til hægri frá stofnun þess flokks?
Jón Þórhallsson, 30.8.2015 kl. 14:38
NEI ALDREI! Eða bentu mér á það Jón. Fyrir mér hefur Sjálfstæðisflokkurinn ætíð verið miðjumoðsflokkur með SÓSÍALDEMÓKRATAÍSKU ívafi. Enda hefur ríkisbáknið aldrei þanist eins mikíð út og í hans tíð!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2015 kl. 14:43
Hver er afstað hægri-grænna til hjónabanda samkynhneigðra?
Jón Þórhallsson, 30.8.2015 kl. 15:09
Hægri grænir hafa ekki ályktað um slík mál ennþá. Höfum lagt aðaláherslu á efnahagsmál og þjóðfrelsismál. Persónulega tel ég kynhneigð fólks einkamál hvers og eins. Sjálfur er ég kristinn,og vill standa vörð um hana í okkar þjóðfélagi!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2015 kl. 15:44
Okkar stefna hefur ekki verið mótuð á öllum sviðum, og þess vegna hvetjum við fólk að ganga í flokkinn og hafa áhrif. Landsfundur verður haldinn innan nokkra mánaða!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 30.8.2015 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.