Gunnar Bragi sósíaldemókrati og ESB sinni !

Enn og aftur ætlar Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra að sanna sig sem sósíal-
demókrata og ESB sinna. Til hamingju  með
það  framsóknarmenn eða hitt þó heldur!

Klúður eða öllu heldur ásetningur ráðherra 
að afturkalla EKKI ESB umsóknina með óygg-
jandi hætti er öllum ESB-andstæðingum enn
í fersku minni. Nú er það allt í höndum ESB
hvernig áframhaldandi aðlögunarferli verði
háttað í  framtíðinni. Þökk sé Gunnari Braga
eða hitt þó heldur!

Ráðning aðalsamningarmanns vinstristjórnar-
innar við að troða Íslandi inní ESB og sósíal-
demókrata, sem ráðuneytisstjóra utanríkisráðu-
neytis Gunnars Braga, sýnir svo ekki verður um
villst, hvert sósíaldemókrataískt hjarta hans
slær.

Aðal áhugamál hins nýja ráðuneytisstjóra  að 
blanda Íslandi inn í deilu Rússa og Úkrainu
með velþóknun Brussels var því auðsótt. Gunnar
Bragi lagðist hundflatur fyrir Brussel, og stór-
skaðaði afar mikilvæg stjórnmála og viðskipta-
tengsl Íslands og helstu vinaþjóð okkar Rússa 
til margra áratuga.

Og enn skal  hinn  sósíaldemókrataíski  og ESB-
sinnaði utanríkisráðhera sýna auðmýkt sína og
hollustu við Brusselvaldið með því að blanda
Íslandi enn og aftur inn í viðskiptastríð ESB
og Rússlands. Þrátt fyrir margfalt meira þjóð-
hagslegs tjóns Íslands í því viðskiptastríði
en aðrar ESB þjóðir.

Já Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra
hefur svo sannarlega komið út úr skápnum bæði
sem sósíaldemókrati og ESB-sinni. Með stórskaða
fyrir land og þjóð!

Átakanlegast er svo að horfa upp á aðra ráðherra
og stjórnarliða horfa á aðgerðarlausir. Sem er
í takt við gungustjórnmálin á Íslandi í dag!

ÖMURLEGT! 


mbl.is Óbreytt afstaða Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur Jónas jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Þessi ómerkingur: Gunnar Bragi Sveinsson er svona ámóta lítilmenni, og þeir Loðinn leppur / Hallvarður Gullskór og Jón Gerreksson reyndust vera hérlendis, á Síð- Miðöldunum, fornvinur góður.

Þar um - ei meir að tala, eins og fullhuginn:: Jón heitinn Indíafari Ólafsson hefði orðað það, á sinni tíð (á 17. öldinni).

Með beztu kveðjum - sem oftar og fyrri, af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.12.2015 kl. 21:20

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innlegg þitt Óskar!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.12.2015 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband