Einkennilegt pólitískt hugarástand ráðherra
1.7.2007 | 13:48
Björgvin S Guðmundsson viðskiptaráðherra virðist í
einkennilegu pólitísku hugarástandi þessa daganna.
Björgvin er nýkominn af flokksþingi breska Verkamanna-
flokksins. Það að vera ÍSLENZKUR RÁÐHERRA og sitja
flokksþing erlends stjórnmálaflokks sem slíkur eru auðvitað
hlutir sem engan veginn fara saman. Á Íslandi yrði litið á það
sem grófa íhlutun í íslenzk innanríkismál ef t.d ráðherra
úr bresku ríkisstjórninni sæti flokksþing íslenzks stjórn-
málaflokks, og ekki síst væri sami flokkurinn að velja sér
nýja flokksforystu eins og í tilfelli hjá breskum krötum.
Nærvera íslenzks RÁÐHERRA á flokksþingi breska Verka-
mannaflokksins var því algjörlega óviðeigandi og gjörsam-
lega út í hött.
En pólitiskt hugarástand ráðherra virðist ekkert skána. Í
viðtali í Mbl í dag segir hann ,,að stór hluti Framsóknar
eigi eftir að renna saman við Samfylkinguna í einn stóran
jafnaðarmannaflokk, hvort sem það verður eftir fjögur eða
átta ár. Sameiningarferlinu er ekki lokið." segir Björgvin.
Þessi ummæli eru vægast sagt stór furðuleg og verða að
skoðast í ljósi þess pólitíska hugarástands sem ráðherra
virðist vera í þessa daganna. Þegar menn skilja ekki lengur
venjuleg landamæri milli ríkja og hvað í þeim felst, er ekki
nema von að þeir ruglist á flokkslegum skilum og þeim
ólíku þáttum sem þeim valda........
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.