Guðni á réttri leið


   Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins vill standa
vörð um íslenzkar orkuauðlindir, og vill forða því að útlendingar
komist inn í þær bakdyramegin. Þetta eru rétt viðhorf hjá Guðna.
Næsta verkefni Framsóknarflokksins á að vera að endurskoða
fiskveiðistjórnunarkerfið frá grunni hafandi í huga að fiskauðlindin
kringum Ísland er sameign þjóðarinnar. Núverandi kerfi hefur
gengið sér til húðar, bæði hvað varðar verndunargildi og ekki síst
hvað varðar réttlætissjónarmið. Kvótabraskið svokallaða gengur
ekki lengur, og hefur í raun aldrei gert. Ef formanni Framsóknar-
flokksins tekst að umbylta stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum,
þannig að sameign þjóðarinnar á auðlindum hafsins sé virt í
raun, mun hagur Framsóknar vænkast mjög á næstunni.
Flokkurinn á einmitt nú að nota tímann vel  í stjórnarandstöðu til
að enduskoða og breyta stefnu sinni í þessum mikilvæga mála-
flokki.  Framtíð hans gæti þar skipt sköpum.  -  Áfram Guðni !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband