ESB-andstæðingar haldi vöku sinni


   Skv. skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag eru andstæðingar
aðildar Íslands að ESB og þess að tekin verði upp evra enn í
meirihluta. Hins vegar er ljóst að ESB-sinnum vex ásmegin, og
því mikilvægt að allir ESB-andstæðingar haldi vöku sinni hvar í
flokki sem þeir standa. Þetta mál er og á eftir að verða mikið
hitamál í íslenzkum stjórnmálum, ekki síst þar sem hér er líka
um mikið tilfinningalegt mál að ræða, því fullveldi og sjálfstæði
þjóðarinnar er í veði.

   Ljóst er að ESB-sinnar bættu meiriháttar aðstöðu sína til
áróðurs fyrir málstaðnum eftir að þeim var hleypt inn í ríkis-
stjórn Íslands.  Það var fyrirsjáanlegt, að þegar helmingur
ráðherrar ríkisstjórnarinr voru orðnir yfirlýstir trúboðar ESB-
aðildar hlyti áróðursstaða þeirra að batna til muna. Enda
hafa þeir beitt henni að fullu síðan, og það svo að forsætis-
ráðherrann er farinn að kveinka sér.

   Það er því mikilvægt að ESB-andstæðingar standi vaktina.
Ekki síst hér á blogginu. Þar á t.d hrós skilið Hjörtur J. Guð-
mundsson, sem hefur ótrauður miðlað mikilvægum upplýsing-
um um Evrópumál, bæði á bloggi sínu og heimasíðu Heims-
sýnar, samtökum sjálfstæðissinna í Evópumálum. Slíkir menn
eru ómetanlegir í þeirri hörðu sjálfstæðisbaráttu sem augljós-
lega er  framundan.........

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband