Vinstrimennska sjálfstæðismanna


   Svo virðist að í Sjálfstæðisflokknum séu nú aðallega tvær
fylkingar  sem  togast  á um með  hvaða vinstriflokknum
Sjálfstæðisflokkurinn  á  að  starfa.  Annars vegar er það
Geirsarmurinn sem  hefur gjörsamlega  fallið  fyrir sósíal-
demókrötunum  í  Samfylkingunni, og hins  vegar er það  
Davíðsarmurinn  og Morgunblaðið  sem vill  að Sjálfstæðis-
flokkurinn starfi með sósíalistunum í Vinstri- grænum, bæði
í borgarstjórn og landsstjórn.

   Það  er með  hreinum  ólíkindum  hvernig  komið  er fyrir
hugmyndafræði sjálfstæðismanna í dag, hafi hún einhvern
tímann verið til.  Því hafi Sjálfstæðisflokkurinn talið sig vera
málsvara borgarasinnaðra viðhorfa þá glutraði hann þeim
málsvara endalega niður  í vor þegar honum stóð til boða
áframhaldandi frjálslynd og framfarasinnuð borgaraleg ríkis-
stjórn með  Framsókn  og  Frjálslyndum, en hafnaði því.  Og 
nú kastast  á hnútuköstin milli armanna tveggja í Sjálfstæðis-
flokknum. Í áramótagrein formanns flokksins í MBL sér hann 
sérstaka ástæðu til að verja þá ákvörðun sína um að hafa
myndað ríkisstjórn með Samfylkingunni í stað Vinstri-grænum.
Og í  Reykjavíkurbréfi  nú  í  sunnudagsblaði  Morgunblaðsins
áréttar blaðið skoðanaágreining sinn við formanninn og telur
ritstjórinn sem  er  úr  DavÍðsarminum  best  fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn  að mynda sem fyrst  nýjan meirihluta í  borgarstjórn  
með Vinstri- grænum  og  vísar  til  þess hvað sé að  gerast í  
Þýzkalandi, en  þar  telur riststjórinn vera í uppsiglingu sögu-
legar sættir milli Kristilegra demókrata og Græningja sem leitt
gæti til samstarf þeirra nú í borgarstjórn Hamborgar eftir kosn-
ingar sem standa þar fyrir dyrum, og sem gæti orðið ávísun á
samstarfs þessara flokka síðar í ríkisstjórn Þýzkalands. 

  Í Reykjavíkurbréfinu  segir: ,, Þegar  horft  er til málefnanna
eingöngu er ljóst að meiri samstaða er milli sex borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og borgarfulltrúa Vinstri grænna en annara
hópa innan borgarstjórnarinnar. Það er því ljóst að á málefna-
legum forsendum væri auðvelt að mynda meirihluta milli þessara
tveggja flokka í borgarstjórn Reykjavíkur með sama hætti og
breska tímaritið sem vísað var til, geti gerst í borgarstjórn Ham-
borgar.

   Myndun slíks meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur með Svan-
dísi Svavarsdóttir sem borgarstjóra mundi hafa tvenns konar
þýðingu. Í fyrsta lagi myndi reyna á hvernig samstarf gengi á
milli Sjálfstæðisflokks og Vinstri  grænna, sem vissulega væri
forvitnilegt. Í öðru lagi gæti slíkt samstarf hugsanlega vísað
veginn til samstarfs á landsvísu eins og talað er um að geti
gerst í Þýzkalandi".

  Það sem ristjórinn gleymir í þessu sambandi er að Græningjar
í Þýzkalandi og Vinstri-Grænir á Íslandi eru í grundvallaratriðum
tveir ólíkir flokkar. Í Þýzlanaldi var í sumar stofnaður nýr róttæk-
ur vinstri flokkur, en   Vinstri grænir sáu ástæðu til að senda full-
trúa sinn á stofnsamkomu þess flokks, sem undirstrikun á hug-
myndafræðilegra tengsla við hann. Græningjar eru eingöngu hóf-
samir  umhverfissinnar sem hafna vinstrisinnaðri róttækni sem er
ein pólitískra grunnhugmynda Vinstri-grænna. Þá staðreynd horfir
Morgunblaðsritstjórinn algjörlega framhjá. Því má segja að vinstri-
mennska sjálfstæðismanna er með hreinum ólíkindum í dag. Það
virðist þá  engu skipta hvort um sé að ræða vinstrisinnaða róttæk-
linga eða blinda  Evrópusambandssinnaða sósíaldemókrata. Öll 
ÞJÓÐLEG BORGARALEG VIÐHORF  OG GILDI  virðist þá ENGU skipta
lengur, sbr. áform menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins um
úthýsun KRISTILEGRA SIÐGÆÐA úr grunnskólum Íslands nú á næstu
misserum. 

   Ekki verður annað séð en að Sjálfstæðisflokkurinn hafi endanlega
kastað öllum borgaralegum gildum, viðhorfum og skyldum fyrir róða,
og metur sitt aðalhlutverk í dag að vinna með vinstriflokkunum, koma
þeim til valda og æðstu metorða, sbr að gera Svandísi Svavarsdóttir,
einn róttækasta málsvara vinstrimennsku á Íslandi í dag, að borga-
rstjóra Reykjavíkur. Getur þetta verið ?

   Á hvaða vegferð er þessi Sjálfstæðisflokkur eiginlega  í dag ? Fyrir
hvað stendur hann ?

   Spyr sá sem er kjaftstopp!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Takk fyrir góðan pistil. Tek heilshugar undir. Gleðilegt nýár!

Magnús Þór Hafsteinsson, 5.1.2008 kl. 22:11

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já stórfurðulegt og býst við því að almennir flokksmenn þessa flokks viti varla hvort þeir eru að koma eða fara , hvað þá hvert.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.1.2008 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband