Ekkert hæft í ásökunum Guðjóns


  Guðni Ágústsson,  formaður  Framsóknarflokksins, segir í
viðtali í hádegisfréttum RÚV, að ,, ekkert sé hæft í ásökunum
Guðjóns Ólafs Jónssonar, fyrrverandi þingmanns, um að for-
ystumenn flokksin í borgarstjórn hafi keypt sér föt fyrir hund-
ruð þúsunda króna á kostnað flokksins". Ásakanirnar koma
fram í bréfi sem þingmaðurinn fyrrverandi sendi Framsóknar-
mönnum í Reykjavík.

   Ásakanir Guðjóns Ólafs eru MJÖG alvarlegar. Ennþá alvar-
legri eru þær ef þær eru einungis byggðar á gróusögum eins
og hann sjálfur talar um, og kemur svo í ljós að enginn flugu-
fótur er fyrir þeim, eins og formaður flokksin segir. Hver er þá
tilgangurinn með slíku? Uppbygging flokksins í Reykjavík? Hvers
konar fíflagangur er þetta eiginlega ?

  Framsóknarflokknum  í Reykjavík vantar allt annað en svona
fíflahátt!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Guðmundur Jónas æfinlega !

Framsóknarflokkurinn; jafnt í Reykjavík, sem og á landsvísu, á sér ekki viðreisnar von, meðan dreggjar Halldórs liðsins, er inanborðs, í flokknum, sbr. Valgerði Sverrisdóttur, sem hinn títtnefnda Björn Inga Hrafnsson.

Já;...... Guðjón Ólafur er, eins og hann er. Það verður víst hver að fá að fljúga, sem hann er fiðraður.

Annars;.......... er Framsóknarflokkurinn, fyrir mér, á sama meiði, því miður, Guðmundur Jónas, sami svika flokkurinn, sem hin, að ég hugði, ágæta sjóhunda- og þungavigtarsveit Frjálslynda flokksins, eins, og ístöðuleysi beggja, í þingskapa málinu, ber svo glöggann vott um. Hafi menn ekki úthald, til 2 - 4 eða fleirri klst. ræðutíma á Alþingi, hafa þeir ekkert þar að vilja. Létt verk, sem löðurmannlegt, að undirgangast Haarde klíkuna þar, því miður, hvar VG stóðu þó í lappirnar, einir allra.

Mbk., sem fyrr / Óskar Helgi Helgason        

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband