Dæmigert fyrir vinstrisinnaða öfgamenn og róttæklinga


   Það er alveg með ólíkindum hvað getur farið í taugarnar
á vinstrisinnuðum róttæklingum  og öðrum öfgahópum í
þeirra röðum. Í gær kom til mikilla átaka í Aþenu þegar
griskir föðurlandsvinir hugðust minnast 3 hermanna, sem
létust 1996 í átökum við Tyrki um litið sker. Hvað var svona
slæmt við  það að menn legðu blómsveig á minnisvarða um
þessa grisku hermenn, þannig að kalla varð út óeirðalög-
reglu til að skakka leikinn.?

   - Alveg dæmigert fyrir vinstrisinnaða öfgamenn og róttæk-
linga  sem ætíð skuli  forsmá allt er varðar  þjóðleg gildi og
viðhorf, eins og þessir atburðir frá Aþenu sýna.  - Jafnvel
látnir hermenn  fá ekki verðskuldaða minningarathöfn í friði
fyrir svona vinstrisinnuðum skríl... 
mbl.is Óeirðir í miðborg Aþenu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Ætli geti verið að þér sé jafnókunnugt um bakgrunn þessa máls og mér.  Oft liggja flóknari ástæður á bak við heldur en yfirborðskenndar blaðafregnir gefa til kynna!

Auðun Gíslason, 3.2.2008 kl. 01:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Staðreyndir og bakgrunnur  málsins liggja fyrir. Dæmigerð öfgafull vinstrimennska. Svo einfallt er það!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2008 kl. 01:32

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

En hvað það er þægilegt að lifa í svart hvítum heimi þar sem allt er ofureinfalt...hægri vinstri snú snú.

Georg P Sveinbjörnsson, 3.2.2008 kl. 02:08

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

En Georg. Er ekki ennþá verra að sjá allt í svart/RAUÐU og hætturnar og neikvæðnina allt í kring? Stopp stopp og hætta snú!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2008 kl. 02:17

5 identicon

"Grískir föðurlandsvinir"? 

Hefur þú lesið þér eitthvað til um nasistaflokkinn Chrysi Avyi eða ákvaðstu að skella þessu fram í herferðinni gegn vinstri mönnum án þess að líta í heimildir?  Hafa öfgafullir vinstri menn ekki bullað nóg gegnum tíðna og veitt á sér nægan höggstað? 
Þarftu virkilega á félagsskap ný-nasista að halda í baráttunni?

Það segir sitt hvað um manninn, að skammast út í saklaus ólæti á ráðhúspöllum í "gær" en dásama blóðslóð og ofbeldisfulla framkvæmd "þjóðlegra gilda og viðhorfa" Chrysi Avyi í dag.

Baldur McQueen (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 10:14

6 identicon

Heyrðu Baldur hvað ertu að bulla ??? Dásama blóðslóð og ofbeldisfulla ?? Ég skal bara segja þér eitt vinur minn, að það eru vinstri öfgamenn sem eiga metið í því !!! Og ég sé ekkert að því að menn séu að minnast manna sem hafa fallið í þágu sínar þjóðar.

Sem betur fer fara mönnum með sama hugsunarhátt og þú fækkandi. Það er míkill umræða um pólitík þar sem ég er að vinna og ég verð að segja það, að það gleður mig mikið að heyra fólk tala um vinstrisinnað drasl því það er ekkert annað en það !!! 

Calcio (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 12:11

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Bara sannast enn og aftur Baldur með þessum furðulega málflutningi þínum í hvaða skrítna  hugarheimi þið  þessir róttæku vinstrisinnar og anarkistar lifið í. Enda kunnið aldrei að skammast
ykkar eða bera virðingu fyrir einu eða neinu!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2008 kl. 14:03

8 identicon

Hefðu nafnleysinginn og Guðmundur lesið svar mitt hefðu þeir e.t.v. rekist á eftirfarandi:

"Hafa öfgafullir vinstri menn ekki bullað nóg gegnum tíðna og veitt á sér nægan höggstað?"

Ég er sem sagt ekki að verja blóðuga sögu vinstri öfgamanna; sannarlega ekki.

Tel hins vegar barnalegt að verja nasista til að koma (ódýru) höggi á kommana.

Baldur McQueen (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 19:10

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Baldur. Svona gróf og ósmekkleg athugasemd er ekki svaraverð! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2008 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband