Oddvitarnir axli fulla ábyrgð


    REI-klúðrið og REI-hneykslið er loks komið að endalokum.
Aðalkrafan er að oddvitar þeirra flokka sem stóðu að klúðrinu
og hneykslinu taki á sig hina pólitísku ábyrgð AÐ FULLU  og
segji af sér  störfum í borgarstjórn og öllum öðrum trúnaðar-
störfum í þágu  Reykjavíkurborgar.

   Oddviti Framsóknarflokksins hefur sagt af sér og yfirgefið
stjórnmálin. Fyrir það ber að virða. Nú er komið að oddvita
Sjálfstæðisflokksins.  Afsögn hans er óumflýanleg! Ekki síst
í ljósi atburða síðustu daga.

   Eftir hverju er beðið?

   
 
mbl.is „REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Nú er ég ekki alveg sammála þér, ( aldrei þessu vant ) ég tel að Björn Ingi hafi nú ekki sagt af sér vegna þessa heldur vegna atlögu Guðjóns Ólafs. Málið í heild hins vegar eftir útkomu skýrslugerðarinnar er hjákátlegt miðjumoð flokka sem allir bera ábyrgð að ég tel á málum þeim sem þróast hafa í Orkuveitu Reykjavíkur og umsýslu með fjármuni hennar í allra handa verkefni utan þess verkssviðs sem þjónustufyrirtæki almennings skyldi standi i.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 10.2.2008 kl. 00:05

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Rétt ábending hjá þér Guðrún. En sem máli skiptir er að Björn Ingi, Oddvitinn ásamt öðrum oddvita  í þessu REI máli, hefur sagt af
sér. Það er málið, alla vega hvað Framsókn varðar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2008 kl. 00:47

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

En hinn Oddvitinn, Vilhjálmur, sem ber höfuð ábyrgðina, hefur enn
ekki sagt af sér........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.2.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband