Jón Ásgeir með ESB-glýu


   Í Fréttum stöðvar 2 í kvöld var sagt frá viðtali við Jón
Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformanns Baugs, sem á
að birtast í heild sinni á  hádegisviðtali  Markaðarins á
Stöð 2 n.k mánudag. Þar segir  m.a  Jón. ,, Það er hægt
að stinga höfðinu  í sandinn. Það er  langtímasjónarmið
fyrir ríkið að skoða alvarlega aðild að Evrópusambandinu.
Ef það gerist eiga bankarnir framtíð á Íslandi."

  Vert er að vekja athygli á að þessi skoðun Jóns Ásgeirs
gengur þvert á skoðun t.d Björgólfs Thors  fyrir skömmu.
Þvert á móti taldi hann mikinn  kost að Ísland  lokaði sig
ekki af innan Evrópusambandsins. Tækifæri Íslands væru
margfallt fleiri og betri utan sambandsins en innan.

  Jón Ásgeir hefur ávalt verið hliðhollur Evrópusambandinu.
Telur raunar að allt sé falt, jafnvel fullveldi Íslands og sjálf-
stæði. Svo er raunar alls ekki. - Enda var Jón helsti hvata-
maður að því að Samfylkingin kæmist  í ríkisstjórn. Og tókst
það.  Því miður !

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband