Vinstri grænir auglýsa fund í kirkju


   Hef aldrei heyrt áður stjórnmálaflokk hvetja flokksmenn
sína að mæta til kirkju fyrr. Það gerðist í auglýsingatíma
RÚV í  kvöld. Vinstri grænir  hvattir til  að mæta í  kirkju.
Fríkirkjuna á morgun. Af vísu ekki til messu. Heldur fund-
arhalda. Ekki til að lofsyngja. Heldur mótmæla með svo-
kallaðri Sól á Suðurlandi.

  Prestur Fríkirkjunnar vafðist líka tunga um tönn spurður
um hvort slíkur pólitískur fundur væri við hæfi innan veggja
kirkjunnar.

  Allt þetta sýnir þó að vegir Vinstri grænna eru órannsakan-
legir. - Líka Fríkirkjunnar !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Presti Fríkirkjunnar vafðist ekki tunga um tönn í umræddu svari. Hjörtur Magni er afar vel greindur og með einstaklega góðan og þroskaðan skilning á hlutverki kirkjunnar. Sama má reyndar segja um mág hans Örn Bárð Jónsson sem líkt og Hjörtur Magni hefur leyft sér að færa kirkjuna til fólksins.

Mikið óskaplega hefði Jesú orðið illilega fyrir barðinu á Flokknum ef það fyrirbæri hefði verið komið til valda á hans dögum.

Ekki ber ég þessa presta saman við Jesú Krist en það eiga þeir allir sameiginlegt að hafa kunnað að koma fyrir sig orði. 

Árni Gunnarsson, 16.2.2008 kl. 22:03

2 identicon

Guðmundur Jónas,getur það veri að þú eigir einhverstaðar skóglendi sem er í hættu vegna vegagerðar?Það getur verið að ég sé að tala um einhvern annan en ef svo er þá afsakaðu.

jensen (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 22:28

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jensen. Skil þig ekki frekar en Fríkirkjuna og Vinstri Grænu. Á minn
garð hér í kringum húsið mitt í Reykjavík en engan skóg..

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.2.2008 kl. 22:37

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Að nota kirkju í pólitískum tilgangi er siðleysi, og ætti að vera fyrir neðan virðingu íslenskra stjórnmálamanna.En innan Vinstri grænna er visulega ekki kristnasta fólk í heimi og er sá sem kallar sig prest, Hjörtur Magni þar meðtalinn og þess vegna nær siðferði þeirra kanski ekki lengra.

Sigurgeir Jónsson, 16.2.2008 kl. 22:54

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já einmitt missti af þessu.

Afar fróðlegt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.2.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband