Leyniþjónusta og öryggislögregla nauðsynleg


   Atburðirnir í Ósló í dag sýna og sanna hversu nauðsynlegar
öflugar leyniþjónustur  og  öryggislögregla er í  þeim viðsjár-
verða heimi  sem við  lifum í dag. Hætturnar virðast allstaðar
og enginn er óhultur. Enda hafa öflugar leyniþjónustur og
öryggislögregla bjargarð þúsundum manna undan áformum
hrðurverkamanna  undanfarin ár. Nú síðast í Ósló í dag.

  Á Íslandi hafa af og til orðið umræður um varnar-og öryggis-
mál. Dómsmálaráðherra hefur reynt að þoka málum áleiðis.
Og oftar en ekki fengið hin ótrúlegustu viðbrögð, einkum frá
vinstri. Það er alveg með ólíkindum að til skuli fólk og stjórn-
málamenn sem virkilega halda að þessi mál geti verið með allt
öðru sniði á Íslandi en víðast hvar annars staðar í heiminum.

  Að sjálfsögðu þurfum við á öflugri öryggislögreglu og leyni-
þjónustu að halda eins og allar aðrar sjálafstæðar og full-
valda þjóðir. Frumskylda sérhvers ríkis er að verja þegna
sína. Innra-sem ytra öryggi ríkissins verður því að tryggja
á eins fullkominn hátt og hægt er hverju sinni.

  Öflug íslenzk öryggislögregla auk leyniþjónustu eru því
sjálfsögð krafa í dag. Dómsmálaráðherra á að fá fullan
pólitískan stuðning til að vinna að slíkum málum og það
strax!
mbl.is Frekari aðgerðir vegna gruns um fjármögnun hryðjuverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband