Ekki einu sinni Shakespeare óhultur trúarrugli


   Það fer að verða vandlifað í hinum vestræna heimi fyrir
allskyns framandi  trúarrugli. Ekki einu  sinni þjóðskáld
Englendinga fær að vera í friði. Skv.frétt RÚV.is  létu 9
námsmeyjar  í stúlknaskóla réttrúnaðargyðinga í London
félla sig á grunnskólaprófi af því  þær  þvertóku fyrir  að
svara spurningum um William Shakespeare. Sögðu hann
hafa verið gyðingahatara.  Rökin  voru  að  í einu  verka
Shakespeares,  Kapmaðurinn   í  Feneyjum, hefði verið
dregin upp röng mynd af gyðingum, og væri sérstaklega
okurlánarinn Shylock óviðfeldinn. En það fyndna er, að
þótt Shylock þessi sé ágjarn og óviðfeldinn, leggur höf-
undur honum í munn fræga ræðu einmitt til varnar gyð-
ingum.

   Já það fer að verða ansi vandlifað hér í vestrinu þegar
þjóðskáld Englendinga  er farinn að félla fjölda skóla-
barna á grunnskólaprófi vegna  framandi trúar-rugls
þeirra og ranghugmynda..... 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er erfitt þegar fólk lokar augunum fyrir staðreyndum og reynir að breyta heiminum eftir sínu höfði.  Hefur aldrei gefist vel.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.3.2008 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband