Hvers vegna Kosovo en ekki Tíbet ?


   Hvers vegna viðurkenninir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra og íslenzk stjórnvöld sjálfstæði og full-
veldi  Kosovo en ekki Tíbets? Í Tíbet er sannarlega ÞJÓÐ
með sérstaka menningu og tungu. Tíbet var sjálstætt
rík frá 1911 til 1950 þegar kínverskir kommúnistar her-
numdu landið og innlimuðu það í kínverska alþýðulýðveld-
ið.  Kosovo er hérað í Serbíu og íbúar þess  EKKI sérstök
þjóð. Þjóðréttarlega staða Tíbetbúa er því margfallt sterk-
ari en íbúa Kosovo.

  Hvers vegna svona æpandi ósamræmi í utanríkisstefnu
Íslands sem Ingibjörg Sólrún stýrir nú og ber fulla ábyrgð
á?

   Hræðsla við kínversku kommúnistanna í Peking ?
mbl.is Dalai Lama segir menningarlegt þjóðarmorð framið í Tíbet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segðu, hér eigum við að grípa inn í og viðurkenna Tíbet, hafi það ekki verið gert áður.  Sýna Kínverjum rauða spjaldið, það er komin tími til að heimurinn fordæmi þeirra atferli í Tíbet, og síðan skulum við fordæma ísraelsmenn og þeirra athæfi í Palestínu.  það er komin tími til, og þó fyrr hefði verið.

Ég man eftir frétt þar sem kínverjar ætluðu að þvinga sínum erfðarprins upp á Tíbetbúa sem hinum eina og sanna arftaka Dalai Lama.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2008 kl. 19:27

2 Smámynd: Ólafur Als

Einmitt Ásthildur, ræðum aðeins átökin fyrir botni Miðjarðarhafs og berum saman örlög Palestínuaraba og Tíbetbúa, nú þegar umheimurinn er minntur á voðaverk Pekingstjórnar. Er fólki ekki sjálfrátt?

Eitt af því sem valdhafarnir í Peking hafa getað treyst á er að athygli heimsins hefur m.a. snúið að átökunum á milli Araba og Gyðinga - angistaróp tíbetsku þjóðarinnar hafa drukknað í vestrænu fordæmingarflóði á Ísrael og Bandaríkin og möguleikum til hagstæðrar verslunar við vaxandi stórveldi, sem ekki má styggja á nokkurn hátt.

Ólafur Als, 16.3.2008 kl. 20:32

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Tíbet er nú ekki búið að lýsa yfir sjálfstæði! Þannig að það er erfitt að viðurkenna það.

Hinsvegar hefði Ingibjörg mátt koma þvi skýrt fram að íslendingar harma hvernig Kína hagar sér gagnvart Tíbetum. Það er náttúrulega til skammar!

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.3.2008 kl. 21:44

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það er alveg eins hægt að viðurkenna útlagastjórn Tíbets,
ekki síst til að sýna tíbesku þjóðinni móralskan stuðning í sinni
hetjulegri sjálfstæðisbaráttu gen kommúnistakúguninni í Peking.
Það bara hentar ekki Ingibjörgu og Co ekki núna. Núna hentar henni að búa til gott veður fyrir ESB og viðurkenna Kosovo, herað
í Serbíu sem hefur enga kröfu á sjálfstæði þjóðréttarlega séð.
Það er virkilega SKÖMM af svona pólitískri HRÆSNI!  

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.3.2008 kl. 21:54

5 identicon

Kannski vegna þess að Tíbetska stjórnin í útlegð fer ekki fram á sjálfstæði, né heldur Dalai Lama?

Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband