Vonandi fljótlega líka þýzkar !!!


  Frönsk flugsveit mun koma til Íslands í næsta mánuði til að
stunda hér æfingar og eftirlit með íslenzka flugstjórnarsvæð-
inu, og er  það  vel. Fleiri  flugsveitar  frá  Nato-ríkjum munu
einnig taka  þar þátt á næstu mánuðum. Sakna þó eins þeirra.
Þjóðverja, sem hafa lýst áhuga  á slíkri  þátttöku. Bæði það  að
Þjóðverjar hafa ætíð verið okkur einstök vinarþjóð, og svo hitt
að þýzki herinn er sá öflugasti innan Nato-ríkja í Evrópu í dag.
Þá hafa þýzkar herflugvélar oftar hér viðkomu í millilendingum
en aðrar herflugvélar Nato.

   Menningarleg og viðskiptaleg tengsl Íslendinga og Þjóðverja
hafa ætíð verið mikil. Þurfum að stórefla þau pólitísku, því Þjóð-
verjar hafa t.d lykilstöðu innan Evrópusambanadsins.  En þar
er oft gott að eiga hauk í horni. Samvinna á sviði varnar-og ör-
yggismála gæti þannig orðið einn liðurinn í því að stórauka hið
pólitíska samstarf þessara tveggja meriháttar vinarþjóða. 

  Vonandi verður ekki langt að bíða að þýzkar flugsveitir taki hér
fullan þátt í reglubundnu eftirliti með íslenzka flugstjórnarsvæðinu.

 


mbl.is 100 manna frönsk flugsveit á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða land er svo næst með flugsveit hér? Norður Kórea kannski? Hvað með að bjóða Kínverjum aðstöðu hér? Ef Frakkarnir koma ættum við að biðja þá um að koma með nóg af ódýru rauðvíni. Kínverjarnir geta svo boðið upp á kínverja:)

sexylady (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband