Duglaus ríkisstjórn og innantómir fundir


   Auðvitað á ríkisstjórnin að koma til móts við ALLAN ALMENNING
í landinu  og lækka  skatta á olíu- og bensínverði TÍMABUNDIÐ.
Íslendingar eru ein mesta  bílaþjóð  heims, og  því  kemur hátt
verð á eldsneyti  afar hart  við íslenzkan  almenning. Hérlendis 
eru t.d engar lestarsamgöngur svo dæmi sé tekið. Þá myndi slík
lækkun hafa jákvæð áhrif til lækkunar veðbólgu, sem er ekki van-
þörf á.

  Því eru innantómir fundir fjármála-og samgönguráðherra með
atvinnubílsstjórum mikil  vonbrigði, og sýnir bæði dugleysi og
skilningsleysi þessarar  ríkisstjórnar. Kemur væntanlega vel á
vondann  þegar  samgönguráðherra Samfylkingarinnar þarf nú
að fást við  reglugerðarfarganið  frá Brussel um hvíldartíma at-
vinnubílstjóra. Enn eitt dæmið  um  ruglið  sem þaðan kemur og
sem tekur EKKERT tillit til  íslenzkra aðstæðna. Í slíkum  tilvikum
á alls ekki að fara eftir slíku RUGLI. Reglur sem eru ÓFRAMKVÆM-
ANLEGAR í tilteknu umhverfi á að sjálfsögðu ekki að framkvæma.

   Það segir sig sjálft!

 
mbl.is Innantómur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Heill og sæll,

Þú getur e.t.v. sagt mér hvað nákvæmlega við reglur um hvíldartíma atvinnubílstjóra er "óframkvæmdanlegt´" á Íslandi?

Það er farið vel yfir hvað felst í þeim hérna:

http://www.sveinni.blog.is/blog/sveinni/entry/495417/

Ég bið þig að halda hástöfum í lágmarki í svarinu.

Kveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 8.4.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þórir. Íslenzka vegakerfið er eins og sveitarvegir á ESB-svæðinu. Þegar viðkomandi atvinnubílstjóri hefur ekið svo og svo marga
klst verður hann að stöðva sinn bíl og taka ákveðnan hvíldartíma.
Á vegum ESB-svæðisins eru ótal slík stoppsvæði við vegina en
hérlendis engin. Þá eru veðurfarsaðstæðu hérlendis allt aðrar en
á ESB-svæðinu sem geta gjörbreytt akstursáætlun. M.a af þessum
ástæðum er ESB-regluverkið óframkvæmanlegt á Íslandi. TAKA EKKERT tillit til íslenzkra aðstæðna og eiga því alls ekki að fram-
kvæma hér á Íslandi. - Svo einfalt er það !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.4.2008 kl. 15:58

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

´Guðmundur ef þú hefðir lesið tengilinn sem hann benti á þá er þetta nú vel skýrt út. Ef menn sökum ófærðar fara fram yfri 4,5 klst í akstri þá skrifa þeir skýringu á aksturskífun eða útprentun úr akstursmæli og þá er þetta ekkert mál. Eins þá meiga menn skipta þessum 45 mínútum upp í þrennt og stoppa í 15 mínútur. Þeir  geta keyrt í a.m.k 9 stundir sem þýðir vinnu upp kannski 13 tíma. Finnst þetta nú ekkert svakalegt.

Þetta ákvæði er samsvarandi ákvæði í vinnulöggjöf sem segir til um að starfsmenn mega ekki vinna meira en 13 tíma á sólarhring og eiga samfelda hvíld í 11 tíma.

Þetta ákvæði var sett hér eins og annarstaðar vegna vinnuverndar og öryggis í umferðinni. Hvet þig til að lesa tengilinn sem er í athugasemdinni hér að ofan. Og það sem þar er skrifað í athugasemdum.

Það má ekki gleyma að flestir bílstjórar hér á landi eru ekki sjálfstætt starfandi heldur eru launþegar og þá þarf að vernda.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.4.2008 kl. 16:55

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Veit ekki betur en samgönguráðherra hafð tekið vel í
umkvartanir atvinnubílstjóra hvað þetta og ýmislegt fleira varðar sem þeir eru ósáttir með, og hefur samgönguráðherra sagt fara utan innan skams og beita sér fyrir UNDANÞÁGUM gagnvart þessari reglugerð.  Þannig að sjálfur samgönguráðherra hefur
fallist á rök atvinnubílstjóra um að hún samrýmist ekki íslenzkum
aðstæðum. Og það er kjarni málsins. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 8.4.2008 kl. 17:22

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Samgönguráðherra sagðist ætla að kanna möguleika á undaþágum. Talaði um upp í 5 tíma. EN í þessari grein sem ég var vísa í talar ökukennari sem telur að þessar reglur séu nauðsynlegar sérstaklega hér á landi þar sem eru þröngir vegir, þar vill maður ekki mæta ofurþreyttum ökumanni á 30 tonna ferlíki.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.4.2008 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband