Núverandi meirihluti borgarstjórnar fari frá !


   Það er alveg ljóst að núverandi meirihluti borgarstjórnar og
borgarstjórinn sjálfur er rúin öllu trausti. Það sýndi skoðana-
könnun Gallups í s.l víku. Og ekki eykst traustið við atburði
síðasta sólarhrings. Þess vegna er óumflýjanlegt að núverandi
borgarstjórn  fari frá og nýr meirihluti með nýjum borgarstjóra
taki við. Og það þegar í stað.

  Raunhæfasti kosturinn er meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðis-
flokks með Hönnu Birnu Kristjánsdóttir sem borgarstjóra. Þessir
flokkar hafa  líkustu stefnunar eins og Þorsteinn Pálssson ritsjóri
orðaði það í fréttum í kvöld. Því eiga þeir að endurnýja samstarf
sitt, enda nýir leiðtogar beggja flokka  teknir við. Leiðtogar sem
allt bendir til að geti unnið vel saman til loka kjörtímabils.

   Borgarbúar eru orðnir þreyttir á sífeldri pólitískri upplausn í
borginni. Sú upplausn verðu ekki kveðin niður fyrr en ábyrg
borgaraleg öfl taki við.   -  Slíkt þarf líka að gerast í landsstjórn-
inni sem fyrst!
mbl.is Frumkvæði frá Framsókn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Ég efa að ein breyting enn á meirihlutasamstarfi í Reykjavík myndi breyta einhverju um málin.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.8.2008 kl. 00:55

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Guðrún. Að mínu mati gætu þetta orðið stórpólotísk tíðindi þannig að hin
borgaralegu öfl færu nú að vinna markvíst saman í íslenzkum stjórnmálum.
Myndi borgaralega blokk. Frjálslyndir yrðu þar með að sjálfsögðu. Er að tala
hér um alla stjórnssýslu upp í ríkisstjórnarsamstarf.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.8.2008 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband