Er Dagur B genginn í bandariska Demókrataflokkinn?


  Það er merkilegt með þessa krata. Virðast ólmir í að sækja
flokksþing erlendra flokka og bjóða erlendum flokksleiðtogum
á sín flokksþing. Það er eins og að pólitísk landamæraskyn
þeirra sé  gjörsamlega  á reiki. -  Út fyrir tók þó á s.l ári þegar
viðskiptaráðherra sótti flokksþing breska Verkamannaflokksins.
Hann virtist ekki átta sig á að hann var þá ráðherra í ríkisstjórn
Íslands. Hvernig liti það úr hefði breskur ráðherra sótt flokks-
þing íslenzks stjórnmálaflokks? Gróf íhlutin í íslenzk innanríks-
mál yrði klárlega hin  rökrétta ályktun.

  Alþjóðahyggja krata virðist því engin takmörk sett, enda var
hluti þeirra á móti lýðveldisstofnun 1944, og voru meiriháttar
dragbítar á útfærslu fiskveiðilögsögunar. Ekki að furða þótt
þessir sömu kratar vilji ólmir troða Íslandi inn í ESB, með til_
heyrandi fullveldisafsali og afhendingu okkar helstu auðlinda
í hendur útlendinga.

   Spurningin er hvort Dagur B Eggertsson komi til baka  með
flokksskirteini  bankariska Demókrataflokksins  í  barminum ?

 Kratar án landamæra !!!
 
 Það virðist málið!
mbl.is Dagur B. Eggertsson er á flokksþingi demókrata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Minni þig á að Demókrataflokkurinn í USA er nú ekki dæmigerður jafnaðarmannaflokkur. Oft sagt að hann sé hægramegin við Sjálfstæðisflokkinn. Og merkileg þessi árátta að við eigum ekki að eiga í samskiptum við aðra.

S'iðan má líka benda þér á að fjölmargir sjálfstæðismenn sækja Landsþing yfirleitt í Bandaríkjunum, bara hjá öðrum flokki [Repúblikanaflokknum] Ef að þarna væri Framsóknarflokkur færu þangað menn líka til að hlusta eftir hugmyndum og stefnu þeirra. En Bandríkin hafa haft vit á að koma sér ekki upp þannig flokk .

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.8.2008 kl. 21:02

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Þú mátt ekki rugla saman að menn sæki landsþing EINSTAKRA
flokka erlendis, eða að flokkar séu í alþjóðlegum samtökum og að menn sæki slíka fundi þegar slík SAMTÖK funda. Allt annar hlutur. Og ekki síst þegar RÁÐHERRAR eru farnir að sitja landsfundi ákveðna flokka erlendis.
Gjörsamlega út í hött!  GJÖRSAMLEGA!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 27.8.2008 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband