Dýr Dagur


  Í Mbl. í dag  kemur fram að Dagur B.Éggertsson leiðtogi
Samfylkigarinnar í borgarstjórn Reykjavík setur öll met
hvað varðar ferðarkostnað árin 2005-2008. Þetta kemur
fram í svari borgarstjóra við fyrirspurn Ólafs F. Magnús-
sonar.  Ferðakostnaður Dags var um kr. 3.300.000 meðan
Vilhjálmur Þ.Vilhjálsson fyrrv.bortgarstj. eyddi 2.200.000,
Ólafur F. Magnússon fyrrv .borgarstjóri  kr. 104.000  og
núverandi borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir eyddi
kr. 1.076.000  á þessu tímabili.

  Þetta er afar athyglisvert í ljósi þess að Dagur sat ein-
ungis 100 daga í sæti borgarstjóra í 100 daga meirihluta,
og hefur oftar en ekki talað manna mest fyrir mikilli ráðdeild
í rekstri borgarinnar. 

  Enn eitt dæmið um ósamræmi orða og efnda Samfylkingar-
innar,  ,,Jafnaðarmannaflokks Íslands" 

  Sem betur fór urðu dagarnir ekki fleiri en hundrað !

  Dagur ei meir !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Dagur hefur farið erlendis utan þessa tíma. Þetta nær yfir árin 2005 til 2007 þannig að hann var í minnhluta megnið af þeim tíma. Þá var hann m.a. að fara erlendis vegna ákvarðana meirihluta framsóknar og sjálfstæðismanna.

Hann og Hanna Birna voru m.a. í nefnd um skipulag Vatnsmýrar og í dómnefnd og þurftu að vera í samskiptum við erlenda aðila.

Finns innan við milljón á ári ekkert svakalegt. Þú afsakar!

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.9.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gleymir líka Gísla Mareini sem var með 2,5 milljónir og var aldrei borgarstjóri

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.9.2008 kl. 13:48

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Merkilegt Magnús hversu þú ert staurblindur á þessa Samfylkingu. Nánast
eins og hvít dúfa hjá þér.  Auðvitað er þetta bruðl-hneyksli á opinberu fé og EKKERT annað.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.9.2008 kl. 13:56

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara benda á að Ólafur lét skoða 2005 með þessu. Það var ekki kosið í núverandi stjórn fyrr en 2006.

Hér er listinn í heild og ég bendi sérstaklega á Óskar Bergsson sem hefur kom nú inn fyrir Björn Inga ekki margt fyrir löngu. Og önnu Kristjáns sem er ekki borgarfulltrúi á þessu kjörtímabil. Það er eitthvað skrýtið að biðja um upplýsingar sem fara inn á mitt síðasta kjörtímabil.

Dagur B. Eggertsson 3.298.817
Gísli Marteinn Baldursson 2.415.376
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 1.933.600
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 1.407.618
Kjartan Magnússon 1.195.320
Björk Vilhelmsdóttir 1.195.094
Steinunn Valdís Óskarsdóttir 1.141.792
Jórunn Frímannsdóttir 1.041.995
Marsibil Sæmundsdóttir 1.004.782
Hanna Birna Kristjánsdóttir 957.158
Guðrún Ebba Ólafsdóttir 934.027
Árni Þór Sigurðsson 878.432
Svandís Svavarsdóttir 835.177
Sóley Tómasdóttir 798.651
Stefán Jón Hafstein 753.913
Oddný Sturludóttir 718.477
Óskar Bergsson 567.275
Anna Kristinsdóttir 518.348
Þorleifur Gunnlaugsson 496.542
Stefán Jóhann Stefánsson 441.643
Björn Ingi Hrafnsson 403.774
Marta Guðjónsdóttir 365.484
Stefán Benediktsson 332.964
Ragnar Sær Ragnarsson 324.826
Júlíus Vífill Ingvarsson 321.367
Dofri Hermannsson 268.163
Bolli Skúlason Thoroddsen 267.761
Hermann Valsson 266.848
Sif Sigfúsdóttir 254.624
Sigrún Elsa Smáradóttir 231.602
Björn Gíslason 211.377
Jóhannes Bárðarson 194.882
Guðrún Erla Geirsdóttir 188.382
Kristján Guðmundsson 172.950
Margrét Sverrisdóttir 136.997
Alfreð Þorsteinsson 122.135
Ásrún Kristjánsdóttir 107.837
Katrín Jakobsdóttir 104.362
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir 44.480
Ólafur Friðrik Magnússon 0

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.9.2008 kl. 15:14

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

Magnús. Það breytir því ekki að Dagur eyðir um milljón krónum meir en næsti borgarfulltrúi á eftir honum.

Fannar frá Rifi, 20.9.2008 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband