Vonandi stórsigrar Austurríki !
22.9.2008 | 16:07
Ætla rétt að vona og leggst á bæn að Austurríki stórsigri Ísland
í atkvæðagreiðslunni um setu í Öryggisráðinu. Trykkland mun pott-
þétt ná þangað inn með a.m.k allan Arabaheiminn að baki sér.
Framboð Íslands til Öryggisráðsins er eitt af mestu mistökunum
sem gerð hafa verið í utanríkismálum í langan tíma. Mistök á borð
við Íraksstríðið og Schengen-ruglið...
Það er ótrúlegt að nokkrum íslenzkum stjórnmálamanni hafi
dottið þvílík vitleysa í hug, því Ísland hefur EKKERT þangað að
gera. Auk þess mun þetta kosta íslenzka skattgreiðendur
morðfjár, auk þess að hafa eitt allt of dýrmætum tíma ráðherra
og annara embætismanna í þetta rugl. - Fjármunum sem betur
væri komið í dag í fjársvelta lögreglu og landhelgisgæslu svo
eitthvað sé nefnt. Floti Landhelgisgæslunnar er bundinn meir
og minna í höfn vegna olíukostnaðar, og helstu lögreglustjóra-
embættin hálf lömuð vegna fjárskorts. - Það er ÓTRÚLEGT að
svona rugl og vitleysa geti átt sér stað! Óskiljanlegt! Og allt
vegna hégóma örfárra stjórnmálamanna..
Til að lágmarka fjárskaðann sem orðin er af þessu ruglfram-
boði er vonandi að Ísland nái alls ekki kjöri. Annars yrði fjár-
austurinn í vitleysuna mun meiri en orðið er. - Síðan þurfa
þeir misvitru stjórnmálamenn sem studdu rugluð að útskýra
fyrir þjóðinni mistökin. Einkum þeir sem áttu hugmyndina af
því!
![]() |
Tala fyrir framboði Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2008 kl. 00:28 | Facebook
Athugasemdir
Ég hef aldrei heyrt nein gáfuleg rök fyrir því að Ísland eigi að standa í þessu framboði. Það næsta sem ég hef komizt í að fá rökstuðning fyrir þessu rugli er að Ísland eigi alveg eins erindi í þetta eins og hvert annað ríki. En lítið hefur hins vegar komið fram um það hvað við eigum að gera þarna. Hver tilgangurinn er með þessu. Hvernig megi réttlæta þann mikla kostnað sem þetta uppátæki hefur í för með sér fyrir okkur skattgreiðendur þessa lands.
Hjörtur J. Guðmundsson, 22.9.2008 kl. 16:35
Sæll Hjörtur. Upprunalerga hugmundin kom frá Halldór Ásgrímssyni eins
og með Schemgen. Jafn gáfulegt og þegar hann festi kaup á sendiráði í
Japan fyrir um 8-900 millj fyrir þó nokkrum árum. Það er eins og fólk verði
veruleikafirrt komandi inn í þetta utanríkisráðuneytandi gleymandi því að
við eru ekki nema um 300.000 hræður
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.9.2008 kl. 16:42
Benedikt. Þetta er ekki spurning um borgaralega ríkisstjórn eða ekki.
Þetta er dæmi hvernig örfáir misvitrir stjórnmálamenn blekkja sjálfa
sig og aðra. Samfylkinginn studdi þessa vitleysu ekki síður en aðrir
flokkar. Hún er því ekki neydd til að klára málið því hún studdi þessa
vitleysu í upphafi. En get fallist á það sem mið/hægrisinni á þjóðlegum nótum að þetta voru meiriháttar afglöp að þetta gerðist. Benedikt, þú
átt ekki að vera svona blindur á Samfylkinguna. Þú átt að vera gagn-
rýnin á hana eins og ég á ALLA flokka þegar manni blöskrar vitleysan.
Benedikt. Við, almúginn í landinu eigum að láta í okkur heyra þegar
vitleysan keyrir um þverbak, SAMA hver í hlut á.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.9.2008 kl. 20:37
Sæll Guðmundur.
Ég er ansi hrædd um að erfitt verði að útskýra tilstandið með haldbærum rökum.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 23.9.2008 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.