Versnandi horfur í Svíþjóð


   Þrátt fyrir aðild Svíþjóðar að ESB, tenging  hennar við evrusvæðið,
og búið við sósíaldemókratisma í áratugi, eru nú versnadi horfur í
Svíaríki. Atvinnuleysi 6-7% og hagvöxtur rúmt 1% og spáð jafnvel
engum á næsta ári.  Þannig koma versandi fréttir af efnahags-
ástandi inna ESB eins og á færibandi. Sem sýnir að aðild að ESB
og evrutengingar eru engin lausn.  Og allra síst töfralausn.

   Þvert á móti mun það sýna sig á næstunni hversu íslenzka hag-
kerfið verður fljótt að aðlaga sig einmitt vegna sveiganleika þess.
Rétt og ábyrg hagstjórn ásamt sjálfstæðri mynt eru þar lykilatriði.
Peningamálastefnan þarf hins vegar að skoða frá grunni í ljósi
reynslunnar síðustu 7 ára...
mbl.is Versnandi horfur í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta hefur bara ekkert með ESB að gera saman ber:

Fjármálaráðherra Svíþjóðar, Anders Borg, segir í viðtali við Dagens Nyheter í dag að þar sem Svíþjóð sé lítið opið hagkerfi þá hafi þau óveðurský  sem séu yfir mörkuðum heimsins áhrif á efnahag Svíþjóðar

Þetta er bara sama staða og hér og þú gleymir:

Þrátt fyrir þetta telur Borg að ríkisstjórnin geti staðið við loforð sitt um lækkun skatta.

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.9.2008 kl. 11:51

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Er bara að benda á hremmingar Svía með bullandi atvinnuleysi
(mesta böl sem hent getur fólk) og nánast engan hagsvöxt ÞRÁTT FYRIR
ESB og beintengingu við evru. Því fastgengisstefna eða mynt með
gengi og vaxtastig án neins tillits til þess hvað er að gerast í VIÐKOMANDI
hagkerfi gengur ekki upp til lengdar. Bara segir sig sjálft...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.9.2008 kl. 13:07

3 Smámynd: Fannar frá Rifi

Magnús. Þið talið um að ESB og Evra muni geta bjargað öllu hérna. Afhverju bjargar hún ekki öllu á Írlandi og Spáni?

Vitið þið ekki betur eða eruð þið hreinlega að ljúga þegar þið talið um að Evran og ESB bæti allt?

Fannar frá Rifi, 22.9.2008 kl. 14:12

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Svíar hafa ekki tapað á því að standa utan evrusvæðisins

Fjármálaráðherra Svíþjóðar, Anders Borg, sagði í viðtali við sænska viðskiptavefritið E24 22. apríl sl. að bæði efnahagslegir og pólitískir ókostir þess fyrir Svía að standa utan við evrusvæðið væru hverfandi og að aðrir þættir, s.s. umbætur á vinnumarkaði, væru mun mikilvægari forsendur hagvaxtar í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Borg tók Finnland sem dæmi um ríki sem hefði búið við mikinn hagvöxt jafnvel þó það hefði ekki tekið upp evruna sem gjaldmiðil.

http://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/186968/

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.9.2008 kl. 17:01

5 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Og þarna er að að sjálfsögðu átt við stöðuna í Finnlandi áður en evran var tekin upp þar í landi.

Hjörtur J. Guðmundsson, 22.9.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband