Lögsækjum Breta !


   Með tilefnislausum árásum breskra stjórnvalda á Kaupþing
í gær,  er  olli  því  að   Kaupþing  komst í þrot, eiga  íslenzk
stjórnvöld að lögsækja  Breta fyrir þann gífurlega skaða sem
aðför breskra stjórnvalda hafa kostað íslenzkt þjóðarbú. Að
ríki eins og Bretland beiti  sértækum  hryðjuverkalögum  til
árásar á stærsta banka Íslendinga, með þeim afleðingum
að hann hrynur til grunna,  er með hreinum eindæmum í
siðmentuðum heimi viðskipta. 

  Bresk stjórnvöld hafa stórskaðað  íslenzka þjóðarhagsmuni.
Íslenzk stjórnvöld eiga engra kosta völ en að bregðast við af
hörku, og krefjast skaðabóta. Það eru Bretar sem stórskulda
Íslendingum í dag, en ekki öfugt.

  Í kjölfar alls þessa eiga Íslendingar að slíta stjórnmálasam-
bandi við Breta.  Höfum engin samskipti að gera við eins óvin-
veitta þjóð.  Bretar hafa löngum sýnt Íslendingum ótrúlega
óvináttu, og beitt þeim hervaldi hvað eftir annað.

   Mælirinn er einfaldlega fullur!
mbl.is Brown: Viðhorf íslenskra stjórnvalda óviðunandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ísland hefur ekki efni á stórri milliríkjadeilu núna. Best er að þegja bara. Brown getur ekki rifist einn út í það endalausa.

Hitt er svo betra að höfða skaðabótamál fljótlega ef einhver von er um að vinna slíkt mál. Sigur í skaðabótamáli myndi stórauka trúverðugleika Íslands.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 18:02

2 identicon

Það má alveg hafa þetta í huga svona þegar um hægist, alla vega að skoða þetta

Valsól (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 18:19

3 Smámynd: Gestur Guðjónsson

full ástæða til að skoða rétt okkar þegar um hægist á ný. Skaðinn er ótrúlegur.

Gestur Guðjónsson, 9.10.2008 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband