Líkur á þjóðlegum borgaraflokki hljóta nú að aukast
15.12.2008 | 00:23
Allt bendir til að Sjálfstæðisflokkurinn muni klofna í Evrópumálum
á landsfundi hans í janúar n.k. Að flokksforystan hafi þegar ákveðið
að flokkurinn samþykki umsókn að Evrópusambandinu, þótt mikill
meirihluti hins almenna flokksmanns sé því andvigur skv skoðana-
könnun nýverið. Allt skal gert til að halda lífi í núverandi ríkisstjórn,
jafnvel undir hótunum samstarfsflokksins.
Hjörtur J Guðmundsson einn þekktasti og virtasti bloggari hér á
Mbl.is og mikill sjálfstæðismaður, lýsir ástandinu innan Sjálfstæðis-
flokksins vel á heimasíðu sinni í gær. Hann segir að mikill fjöldi sjálf-
stæðismanna myndi aldrei geta stutt flokkinn samþykki hann aðildar-
umsókn að ESB. Frekar myndi sá hópur kljúfa sig úr flokknum og
stofna nýjan flokk. - Sömu raddir heyrast innan Framsóknar. Þar á
bæ bíða margir eftir flokksþingi í janúar. ESB-sinnar hafa nú yfirtekið
flokkinn og 100% líkur eru á að Framsókn verði formlegur Evrókrata-
flokkur eftir það flokksþing. Bjarni Harðarson hefur gefið í skyn að
allt gæti gerst um stofnun þjóðlegs borgaraflokks ef allt færi á versta
veg í Framsókn og Sjálfstæðisflokki í Evrópumálum eftir áramót.
Þannig hjóta líkur á að stofnaður verður þjóðlegur borgaraflokkur
fara vaxandi. Því það er mikill misskilningur hjá Geir H Haarde að
Vinstri grænir séu einhver valkostur í þeim efnum. Bæði er það að
VG er ekki heldur treystandi í Evrópumálum, er sósíaliskur flokkur
sem borgarasinnar myndu aldrei geta stutt, og því yrði stofnun á
nýju sterku borgaralegu afli á þjóðlegum grunni mjög fýsilegur kostur
fyrir sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Auk þess gæti stofnun slíks
flokks orðið til mikillar hreinsunar og uppstokkunar á mið/hægri
kannti íslenzkra stjórnmál. Nokkuð sem mikill fjöldi bogarasinnaðs
fólks kallar mikið eftir í dag.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Heill og sæll; Guðmundur Jónas, líka sem aðrir skrifarar og lesendur !
Breiðfylkingu íslenzkra Evrópusambands anstæðinga; kynni ég að styðja, svo fremi, að hún yrði ekki niðurnjörvuð, í kviksyndi núverandi flokka kerfis, Guðmundur minn.
Álpizt Bjarni Harðarson til; að hverfa frá Framsóknarflokknum, veit ég,, og hefi hlerað, eftir ýmsum sunnlenzkra bænda, að þeir kysu, að Bjarni leiddi nýjan flokk þeirra, ef til kæmi, þókt svo ég; persónulega, telji Bjarna bezt geymdan, í sinni ágætu bókhlöðu, hjá Selfysskum, hér eystra.
Hjörtur J Guðmundsson; fyrrum spjallvinur minn, er mér vaxandi ráðgáta. Hver fjandinn er; að brjótast um, í kollinum á honum, veit ég ekki, en hann hefir lokað, fyrir athugasemdakerfi sitt, hvað áður stóð flestum, opið, til umræðna ýmissa. Má vera; að hann hafi verið orðinn pirraður, á froðusnakki ESB kratannna ? Má vera; Guðmundur minn.
Með baráttukveðjum; góðum, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 15.12.2008 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.