Hinn einlægi ESB-sinni Þorgerður Katrín


   Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vara-formaður Sjálfstæðis-
flokksins hefur nú loks opinberað sig sem einlægann ESB-
sinna. Í viðtali við norska blaðið Klassekampen segir hún
að Íslendingar EIGI ENGRA ANNARA KOSTA VÖL í efna-
hagskreppunni en að ganga í ESB. Kom þetta fram á RÚV
í hádeginu.

  Þá liggur það fyrir sem  ALLTAF  hefur  blundað í Þorgerði
Katrínu. ALLTAF! Ást hennar og trú á Evrópusambandinu.
Enda átti vinskapur hennar við Ingibjörgu Sólrúnu STÆRSTAN
þátt í myndun núverandi ríkisstjórnar.  Með því sá Þorgerður
Katrín ESB-ferlið fara í gang.  Ferli, sem hún hefur alltaf svo
mikið dreymt um. 

  Allt bendir því til að Þorgerður Katrín og aðrir  ESB-sinnar innan
Sjálfstæðisflokksins ætli að láta  kvé fylgja kviði á komandi lands-
fundi  og gera  Sjálfstæðisflokkinn að Evrópusambandssinnuðum
flokki eins og Samfylkingin. -  Hótun Ingibjargar Sólrúnar  um 
helgina  er því svo sannarlega að svínvirka þessa daganna.
Komin fram úr björtustu vonum kratanna.........

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Sæll Guðmundur.

Eitthvað þrætir hún fyrir ummæli sín en norski blaðamaðurinn er ekki í neinum vafa um hvað hún sagði. Þessi blaðamaður hefur mjög mikla reynslu og virkaði á mig sem mjög mikill fagmaður þegar ég hitti hann:

http://www.magnusthor.is/default.asp?sid_id=23965&tId=2&fre_id=80725&meira=1&Tre_Rod=006|&qsr

Magnús Þór Hafsteinsson, 15.12.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband