Ætlar ríkisstjórnin að falla á tíma að kæra hryðjuverkalögin?


  Hvers konaar seinagangur er þetta eiginlega? Eftir örfáa daga
líður út fresturinn til að kæra Breta vegna hryðjuverkalaganna.
Og nú berast fréttir af því að enn sé togast á um vaxtakjör vegna
icesave-reikninganna sem ríkisstjórnin ætlar að láta Breta neyða
sig til að skrifa undir. Þótt ENGINN skýr lagabókstafur kveði á um
slíkt.

  Er það virkilega svo að ríkisstjórnin ætli að nota kæruna vegna
hryðjuverkanna sem skiptimynt um vaxtakjörin á icesavereikn-
ingunum ? Ef svo er er best fyrir Hr Geir H Haarde og ríkisstjórn-
hans að segja TAFARLAUST af sér.  Þjóðin mun ALDREI líða slíka
uppgjöf.  Nógu mörg afglöpin hefur núverandi ríkisstjórn gert,
að slík þjóðarsvik yrðu ALDREI látin fram ganga. Þá fyrst yrði
alvöru uppreisn gegn ríkisstjórninni ef svo færi.


mbl.is Icesave-lánakjörin enn óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Sem betur fer mótmælti Guðjón Arnar nú í fréttum ríkisútvarpsins í kvöld.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.1.2009 kl. 22:54

2 identicon

Afhverju eigum við að borga Icesave reikningana ?? þú ert bókari og veist að ríkið ábyrgist ekki skuldbindingar einkafyrirtækja, mig vantar rök fyrir því.

Baldur M Róbertsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 23:39

3 identicon

Ég þekki tvo mjög færa fasteignasala hér á landi og hef persónulega góða

tenginu í Bretlandi.

Ég á bæði góða vini þar sem og ættingja.

Allir þessir aðilar eru sammála um eitt. Húsnæðisverð á Bretlandi á eftir

að lækka gríðarlega á næstu árum. Ef þessar eignir eru húsnæði þá erum við

í djúpum skít. Sorry gott fólk en við komum til með að borga svo háar

upphæðir fyrir Icesave að ég fæ ekki séð hvernig þjóðarbúið á að ráða við

það.

Ég er algerlega sammála þeim sem vilja ennþá venda kvæði í kross og borga

ekki þessar skuldir.

Ég er algerlega sammála ykkur og Frjálslynda flokkinum með það. Lesið þennan link ef

þið hafið ekki gert það.

http://visir.is/article/20090103/FRETTIR01/492564616/-1

Már (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 23:47

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Baldur, jú er bókari en eins og þú SKIL ALLS EKKI hvers vegna ég og þú
eigum að borga fyrir meiriháttar slysafjárfestingar EINKAAÐILA í útlöndum,
þótt þessir gaurar séu samlanda mínir. BARA SKIL ÞAÐ Í ANDSKOTANUM
ALLS EKKI!  Spurðu ESB-sinnanna, þessa sem komu þessum andskotans
EES-samningi á, og vilja nú ganga ENNÞÁ LENGRA inn í kjaftgóm  Brusselsvaldsins!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.1.2009 kl. 00:36

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Heill og sæll á nýju ári, kæri Guðmundur, og mikið er gott að koma hér í ferskan gustinn hjá þér, þann skýrleika hugsunar sem feykir burt lognmollu hinna mörgu, sem engar lausnir sjá. Ég er þér hjartanlega sammála um Icesave-málið og hryðjuverkalaga-málið líka ásamt fleira, en hef litla trú á því, að þessi samanspyrta Þingvallabæjarstjórn komi nokkru af viti í verk.

Leyfist mér í bloggvandræðum mínum og vegna vinskapar okkar og samstöðu í málum að benda lesendum þínum á, að þrátt fyrir að hafa ekki getað skrifað nýjar greinar á Moggabloggi mínu síðan fyrir jól, þá get ég þó bloggað á VÍSISBLOGGI MÍNU og hef skrifað þar þessar greinar frá gamlársdegi þar til nú á liðnu kvöldi: Forsætisráðherra segir ekki stórmál að hann femji lögbrot – Bjóðum nýtt ár velkomið og stöndum nú vörð um fullveldi Íslands – Áramótaræður hinna samseku – Sómamanni svarað um ömurleg samningsmarkmið EB-elskandi Samfylkingarmanna og að endingu: SI og ritstjóri Mbl. nota villandi skoðanakönnun í baráttu fyrir innlimun í Evrópubandalagið.

Með heilshugar ósk um gæfuríkt nýbyrjað ár, í þínum ranni og á þjóðarvettvangi. Íslandi allt!

Jón Valur Jensson, 4.1.2009 kl. 02:02

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Heill og sæll Jón Valur og gleðilegt ár og takk fyrir öll samskiptin á liðnu ári.
Með von um að úr rætist með tölvuvandamál þannig að þú getir sem fyrst
komist inn á Mbl.bloggið. Mikil þörf er á þér þar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 4.1.2009 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband